Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. janúar 2002 Innviðaráðuneytið

Uppreiknuð tekju- og eignarmörk vegna viðbótarlána og félagslegra leiguíbúða

Uppreiknuð tekju- og eignarmörk vegna viðbótarlána og félagslegra leiguíbúða
Tekju- og eignarmörk viðbótarlána skv. 5. og 6. gr. reglugerðar um viðbótarlán nr. 783/1998, sbr. 395/2001, og félagslegra leiguíbúða skv. 23. og 24. gr. reglugerðar um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur nr. 873/2001 hafa verið uppreiknuð til 1. janúar 2002.

Í reglugerð nr. 395/2001 frá því í maí sl. um breytingu á reglugerð um viðbótarlán nr. 783/1998 var við hækkun á tekju- og eignarmörkum miðað við neysluverðsvísitölu janúarmánaðar 2001. Samkvæmt tillögum starfshóps sem hafði það hlutverk að endurskoða reglugerð um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, nr. 423/1999, voru sömu útreikningar notaðir. Starfshópurinn mælti með því að samræmis væri gætt við útreikning tekju- og eignarmarka í báðum þessum reglugerðum þannig að um væri að ræða sömu fjárhæðir. Reglugerð um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, nr. 873/2001 var sett nú í nóvember sl. Tekju- og eignarmörkin í 23. og 24. gr. reglugerðarinnar tækju þá breytingum samkvæmt hækkun á neysluverðsvísitölu frá 1. janúar 2001 til 1. janúar 2002 (sem er rúmlega 8,6% hækkun samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands). Í reglugerðunum er miðað við árlega hækkun neysluverðsvísitölu 1. janúar ár hvert og kveðið á um að félagsmálaráðherra skuli láta reikna viðmiðunarfjárhæðirnar í upphafi hvers árs og birta nýjar fjárhæðir.

Meðfylgjandi er uppreiknuð tekju- og eignarmörk vegna viðbótarlána og félagslegra leiguíbúða. Við útreikning á tekju- og eignarmörkum í báðum þessum reglugerðum er miðað við hækkun á neysluverðsvísitölu frá 1. janúar 2001 til 1. janúar 2002.

Viðbótarlán skv. 5. og 6. gr. reglugerðar um viðbótarlán nr. 783/1998, sbr. 395/2001
Tekju- og eignarmörk vegna viðbótarlána verða þá svohljóðandi eftir 1. janúar 2002:
Tekjur fyrir einstakling 2.213.000 kr.,
Tekjur fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr á heimilinu 370.000 kr.,
Tekjur fyrir hjón og sambúðarfólk 3.099.000 kr.
Eignarmörk verða 2.390.000 kr.

Félagslegar leiguíbúðir skv. 23. og 24. gr. reglugerðar um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur nr. 873/2001
Tekju- og eignarmörk vegna umsækjenda verða þá svohljóðandi eftir 1. janúar 2002:
Tekjur fyrir einstakling 2.213.000 kr.,
Tekjur fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr á heimilinu 370.000 kr.,
Tekjur fyrir hjón og sambúðarfólk 3.099.000 kr.
Eignarmörk verða 2.390.000 kr.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum