Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. febrúar 2002 Innviðaráðuneytið

Rafræn útgáfa af Stjórnartíðindum og Lögbirtingablaði

1. febrúar 2001

LögbirtingablaðiðDómsmálaráðuneytið hefur opnað vefinn www.lagabirting.is en þar er hægt að skoða Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað allt frá byrjun ársins 2001. Í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu segir:
Á vegum dómsmálaráðuneytisins hefur birting lagagagna á netinu verið til sérstakrar athugunar. Í þessu skyni hefur meðal annars verið skipuð nefnd til að huga að framtíðarskipulagi á birtingu laga og stjórnvaldserinda og endurskoða gildandi lög á þessu sviði. Verkefni nefndarinnar er meðal annars að undirbúa rafræna birtingu laga, reglna og opinberra tilkynninga á Netinu, en slík birting er liður í því að hrinda í framkvæmd stefnu ríkisstjórnarinnar um málefni upplýsingasamfélagsins.

Á vegum umræddrar nefndar og í samráði við dómsmálaráðuneytið hefur nú verið undirbúin rafræn útgáfa af Stjórnartíðindum og Lögbirtingablaði. Er gert ráð fyrir að Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað verði birt rafrænt á Netinu samhliða því að hinni prentuðu útgáfu verður haldið áfram með hefðbundnum hætti. Þannig mun rafræn útgáfan fela í sér hreina aukaþjónustu og kemur ekki í stað hefðbundinnar útgáfu.

Í ljósi tölvueignar og netnotkunar verða lög, reglur og opinberar tilkynningar mun aðgengilegri öllum almenningi með útgáfu Stjórnartíðinda og Lögbirtingablaðs á Netinu. Þessi útgáfa gerir þeim sem hafa aðgang að Netinu kleift að nálgast lagagögn um leið og þau hafa verið birt. Útgáfan er því vel til þess fallin að ná því markmiði birtingar að efni sem á erindi við allan almenning verði kunnugt og aðgengilegt. Einnig felur útgáfan í sér mikilvæga viðbót við lagasafn á Netinu milli þess sem það er uppfært reglulega með nýrri löggjöf.

Skjámyndir af vefnum www.lagabirting.is

Stjórnartíðindi

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum