Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. nóvember 2002 Innviðaráðuneytið

Upplýsingavefur fyrir alþingiskosningarnar 2003

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið opnaði 11. nóvember 2002 upplýsingavef vegna alþingiskosninganna sem fram fara 10. maí árið 2003. Þetta er í fyrsta sinn sem upplýsingar af hálfu hins opinbera vegna alþingiskosninga eru settar fram með þessum hætti.

Sólveig Pétursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, opnaði upplýsingavefinn og sagði af því tilefni að með vefnum væri stigið: "enn eitt skref í átt til þess að gera upplýsingar stjórnvalda enn aðgengilegri öllum almenningi."

Á upplýsingavefnum, sem hefur slóðina www.kosning2003.is, er að finna fræðandi og hagnýtar upplýsingar um atriði sem lúta að næstu alþingiskosningum. Upplýsingarnar eiga að nýtast almennum kjósendum, stjórnmálasamtökum og þeim sem vinna að kosningunum, t.d. varðandi kjörskrá, utankjörfundaratkvæðagreiðslu og atkvæðagreiðslu á kjördegi.

Vefurinn er gerður með aðgengi sjónskertra í huga.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum