Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. júní 2003 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar starfsmanna á ferðalögum erlendis nr. 3/2003

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu ferðakostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum erlendis á vegum ríkisins sem hér segir:

Almennir dagpeningar:
Gisting
Annað
Samtals
London, New York borg, Washington DC og Tókíó.....
SDR
145
110
255
Annars staðar.........................................................

SDR
110
100
210
Dagpeningar vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa:
London, New York borg, Washington DC og Tókíó.....
SDR
93
70
163
Annars staðar..........................................................
SDR
70
64
134


Ákvörðun þessi gildir frá og með 1. júní 2003. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 3/2002 dagsett 5. júní 2002.

Ennfremur er vakin athygli á umburðarbréfi nefndarinnar, þar sem nánar er kveðið á um tilhögun greiðslu dagpeninga til ríkisstarfsmanna. Umburðarbréfið ásamt auglýsingu ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er að finna á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: http://fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html

Reykjavík, 3. júní 2003

Ferðakostnaðarnefnd


Athugið að leyfilegur frádráttur á móti dagpeningum, samkvæmt skattmati ríkisskattstjóra, þarf ekki að vera sama fjárhæð og Ferðakostnaðarnefnd ákvarðar að greiða skuli starfsmönnum ríkisins vegna ferða á vegum launagreiðanda. Sé leyfilegur frádráttur lægri ber að skila staðgreiðslu af mismuninum.
Sjá upplýsingar um dagpeninga hjá ríkisskattstjóra og upplýsingar um dagpeninga - skattmat hjá ríkisskattstjóra.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum