Hoppa yfir valmynd

Frétt

21. ágúst 2003 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-júlí 2003. Greinargerð: 21. ágúst 2003.

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-júlí 2003 (PDF 24K)


Nú liggja fyrir tölur um greiðsluafkomu ríkissjóðs fyrir fyrstu sjö mánuði ársins. Þessar tölur sýna sjóðhreyfingar og eru því ekki samanburðarhæfar við ríkisreikning eða fjárlög ársins sem eru sett fram á rekstrargrunni.

Greiðsluafkoma
Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 15,4 milljarða króna, samanborið við 13,7 milljarða neikvæða stöðu á sama tíma í fyrra. Fjármunahreyfingar voru hins vegar jákvæðar um 17,2 milljarða króna í ár sem er 11 milljörðum betri staða en í fyrra. Jákvæðari staða skýrist nær alfarið af sölu á hlutabréfum ríkisins í Landsbanka Íslands, Búnaðarbanka Íslands og Íslenskum aðalverktökum. Þessi þróun hefur skilað sér í viðsnúningi á stöðu ríkissjóðs þar sem hreinn lánsfjárjöfnuður ríkissjóðs reyndist jákvæður um 1,8 milljarða króna á fyrstu sjö mánuðum ársins 2003 samanborið við 7,5 milljarða neikvæða stöðu á sama tíma í fyrra.

Tekjur
Heildartekjur ríkissjóðs námu um 147,5 milljörðum króna og hækkuðu um tæpan 16,1 milljarð króna frá árinu á undan, eða um 12,2%. Skýringin á þessum mismun felst fyrst og fremst í auknum tekjum af sölu hlutabréfa ríkisins. Þar af námu skatttekjur ríkissjóðs um 124,4 milljörðum króna og hækkuðu um 5,2% frá sama tíma í fyrra sem jafngildir um 3,4% raunhækkun á milli ára. Innheimtir tekjuskattar einstaklinga námu um 32,4 milljörðum króna og hækkuðu um 4,3% á milli ára. Innheimta tryggingargjalda jókst mun meira eða um 9,1% á milli ára og nam um 14,3 milljörðum króna. Þessi aukna innheimta skatta af launatekjum einstaklinga, bæði tekjuskatti einstaklinga og tryggingagjalds, endurspeglar hækkun launa sem meðal annars birtist í því að launavísitala Hagstofu Íslands hækkaði um 5,6% á sama tíma. Auk þess sem hækkun tryggingagjaldsins, um S%, tók gildi í byrjun þessa árs. Innheimta eignaskatta nam tæpum 4,6 milljörðum króna og lækkaði um 15,8%. Þar ber að nefna að eignaskattar einstaklinga og fyrirtækja voru lækkaðir verulega á þessu tímabili, eða um helming. Veigamesta breytingin er hins vegar í almennum veltusköttum sem hækkuðu um 9,4% frá sama tíma í fyrra, eða sem nemur 7,4% að raungildi. Þar munar mestu um 8,9% meiri innheimtu tekna af virðisaukaskatti. Af öðrum óbeinum sköttum má nefna að veruleg aukning var í innheimtu vörugjalda af ökutækjum eða um 54,2% sem stafar fyrst og fremst af auknum innflutningi bifreiða á fyrri hluta ársins. Auk þess jókst innheimta tekna af áfengis- og tóbaksgjaldi talsvert frá sama tíma í fyrra eða um 19,6%, en um þriðjung þeirrar aukningar má rekja til hækkunar á áfengisgjaldi af sterku áfengi og tóbaksgjaldi. Að öllu samanlögðu benda innheimtutölur í júlí til þess að almenn umsvif í efnahagslífinu séu jafnvel meiri en gert var ráð fyrir í síðustu þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins frá apríl sl.

Gjöld
Greidd gjöld nema 150,8 milljörðum króna og hækka um 8,8 milljarða milli ára. Hækkunin skýrist að mestu af greiðslum til heilbrigðsmála og almannatrygginga eða um 4 milljarða króna hjá hvorum málaflokki fyrir sig. Þar af hækka greiðslur til sjúkrahúsa og öldrunarstofnana um 3 milljarða. Lífeyristryggingar og atvinnuleysisbætur hækka samtals um 3,2 milljarða og sjúkratryggingar um 800 m.kr. Þá hækka greiðslur til Vegagerðar um 1,8 milljarða og hækkun til háskóla og framhaldsskóla nemur rúmum 1 milljarði króna. Á móti vegur að vaxtagreiðslur lækka um 3,2 milljarða milli ára, einkum þar sem stór flokkur spariskírteina var á gjalddaga í apríl 2002. Einnig lækka greiðslur til stjórnsýslunnar og landbúnaðarmála um samtals 900 m.kr. Aðrar breytingar milli ára eru minni.


Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-júlí
(Í milljónum króna)
1999
2000
2001
2002
2003
Innheimtar tekjur..................................
102.725
114.186
122.986
131.399
147.465
- Söluhagn. af hlutabr. og eignahl…
-395
0
3
-3.175
-12.059
Greidd gjöld..........................................
101.315
106.709
128.231
141.957
150.807
Handbært fé frá rekstri.....................
1.015
7.478
-5.246
-13.733
-15.401
Fjármunahreyfingar............................
476
1.325
-2.364
6.213
17.206
Hreinn lánsfjárjöfnuður....................
1.492
8.803
-7.612
-7.520
1.805
Afborganir lána.................................
-18.163
-26.399
-22.045
-19.877
-18.021
Innanlands......................................
-8.492
-12.909
-7.292
-9.737
-5.612
Erlendis...........................................
-9.671
-13.490
-14.753
-10.140
-12.409
Greiðslur til LSR og LH....................
-1.084
-3.500
-8.750
-5.250
-4.375
Lánsfjárjöfnuður. brúttó..................
-17.755
-21.094
-38.408
-32.647
-20.591
Lántökur..............................................
10.738
18.855
31.859
30.324
24.245
Innanlands.......................................
1.666
2.369
11.037
12.370
22.868
Erlendis............................................
9.072
16.486
20.822
17.954
1.377
Greiðsluafkoma ríkissjóðs.............
-7.016
-2.242
-6.547
-2.323
3.654


Lánamál
Lántökur námu 14 milljörðum króna en afborganir voru tæpar 18 milljarðar. Erlend skammtímalán voru greidd niður um 10.7 milljarða króna á fyrri helmingi ársins og spariskírteini um 4.8 milljarða. Á móti vegur aukin lántaka í innlendum skammtímalánum. eða um 12.3 milljarða króna. Þá voru greiddar 3.8 milljarðar króna til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins í því skyni að lækka framtíðarskuldbindingar ríkissjóðs


Tekjur ríkissjóðs janúar-júlí
(Í milljónum króna)
Breyting frá fyrra ári. %
2001
2002
2003
2000
2001
2002
2003
Skatttekjur í heild...............................
113.680
118.212
124.411
11,6
7,0
4,0
5,2
Skattar á tekjur og hagnað.............
38.291
40.344
40.677
26,1
18,6
5,4
0,8
Tekjuskattur einstaklinga.................
27.172
31.019
32.363
23,0
13,3
14,2
4,3
Tekjuskattur lögaðila.......................
6.110
3.607
2.525
23,3
36,1
-41,0
-30,0
Skattur á fjármagnstekjur................
5.009
5.718
5.789
54,3
31,3
14,2
1,2
Tryggingagjöld.................................
12.040
13.080
14.266
8,1
9,6
8,6
9,1
Eignarskattar....................................
5.640
5.514
4.645
7,7
12,5
-2,2
-15,8
Skattar á vöru og þjónustu..............
57.467
59.273
64.822
5,7
-0,6
3,1
9,4
Virðisaukaskattur.............................
36.407
38.474
41.908
9,0
1,2
5,7
8,9
Aðrir óbeinir skattar..........................
21.061
20.799
22.914
0,7
-3,5
-1,2
10,2
Þar af:
Vörugjöld af ökutækjum................
1.957
1.686
2.600
-9,6
-40,1
-13,9
54,2
Vörugjöld af bensíni......................
4.370
4.198
4.191
7,6
1,8
-3,9
-0,2
Þungaskattur.................................
2.896
2.728
2.760
4,2
7,3
-5,8
1,2
Áfengisgjald og tóbaksgjald..........
4.749
4.733
5.660
2,9
-3,9
-0,3
19,6
Annað............................................
7.089
7.192
7.449
-0,7
7,1
1,5
3,6
Aðrir skattar........................................
242
262
254
95,7
33,0
8,3
-3,1
Aðrar tekjur.........................................
9.305
13.187
23.054
5,5
17,6
41,7
74,8
Tekjur alls...........................................
122.986
131.399
147.465
11,2
7,7
6,8
12,2

Gjöld ríkissjóðs janúar-júlí
(Í milljónum króna)
Breyting frá fyrra ári. %
2001
2002
2003
2000
2001
2002
2003
Almenn mál........................................
13.881
15.675
15.981
15,3
9,5
12,9
1,9
Almenn opinber mál.........................
7.766
9.122
8.916
15,1
8,7
17,5
-2,3
Löggæsla og öryggismál..................
6.118
6.552
7.065
15,7
10,5
7,1
7,8
Félagsmál..........................................
74.539
83.982
93.545
-1,8
19,1
12,7
11,4
Þar af: Fræðslu- og menningarmál.....
17.362
19.311
20.696
8,5
15,9
11,2
7,2
Heilbrigðismál..........................
30.878
35.534
39.568
6,1
17,3
15,1
11,4
Almannatryggingamál..............
21.981
24.097
27.828
-19,2
25,4
9,6
15,5
Atvinnumál........................................
20.176
21.366
22.570
4,8
23,0
5,9
5,6
Þar af: Landbúnaðarmál.....................
6.489
6.854
6.419
1,1
24,8
5,6
-6,3
Samgöngumál..........................
8.581
9.236
10.536
6,5
25,6
7,6
14,1
Vaxtagreiðslur...................................
13.470
14.522
11.278
38,6
22,5
7,8
-22,3
Aðrar greiðslur..................................
6.164
6.413
7.433
34,0
53,2
4,0
15,9
Greiðslur alls.....................................
128.231
141.957
150.807
5,3
20,2
10,7
6,2



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum