Hoppa yfir valmynd

Frétt

2. október 2003 Heilbrigðisráðuneytið

Umræður á Alþingi um stefnuræðu forsætisráðherra


Ræða heilbrigðisráðherra, Jóns Kristjánssonar


Virðulegur forseti – góðir tilheyrendur.

Það var einu sinni töframaður sem tíndi úr hatti sínum bæði dúfur og hvítar kanínur. Áhorfendurnir voru börn. Þegar töfraatriðinu lauk kallaði töframaðurinn sigri hrósandi út yfir barnahópinn: - Á ég að segja ykkur hvernig ég fór að þessu?

Börnin sátu sem bergnumin og svöruðu engu fyrst í stað, en svo rétti lítil stúlka upp höndina og sagði: - Mig langar frekari að vita af hverju þú varst að þessu!

Ég hef oft hugsað til þessa þegar ég fylgist með umræðunni um heilbrigðismálin; um útleggingar manna um rekstrarform og samkeppni, um markaðsvæðingu heilbrigðisþjónustunnar, og þann mikla peningalega sparnað sem slíkum breytingum yrði samfara. Að ég tali nú ekki um hve hagfellt þetta nýja Ísland yrði þjóðinni. Ég hef stundum hugsað til þess að kannski hafi mönnum yfirsést að það gæti verið einhver munur á þjóðinni og sjúklingum í þessu sambandi.

Það á að skera upp og ekki niður, segir einn. Menn eiga ekki óttast markaðsvæðinguna, segir annar, og sá þriðji bætir við, að menn skuli ekki vera feimnir við breytingar, þótt þær gangi hugsanlega gegn ríkri jafnaðarhefð í heilbrigðisþjónustu okkar Íslendinga.

Góðir tilheyrendur. Þegar við heyrum þessa röksemd þá eigum við að staldra við og segja við töframanninn: - Mig langar að vita af hverju þú heldur þessu fram.

Galdurinn liggur í að reyna að átta sig bæði á hugsjónum og hagmunum þegar umræður um heilbrigðismálin standa sem hæst.

Virðulegur forseti.

Í fjárlagafrumvarpinu birtast áherslur ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum og þar sést að málaflokkurinn er hæst á forgangslista ríkisstjórnarinnar. Það er vilji ríkisstjórnarinnar að allir landsmenn hafi greiðan og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu, óháð aldri, búsetu og efnahag, eins og fram kemur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar.

Framlögin til málaflokksins eru aukin og þannig vill ríkisstjórnin standa vörð um þá stefnu og þær áherslur sem lagðar hafa verið.

Virðulegur forseti.

Hæstvirtur forsætisráðherra drap á þann vilja ríkisstjórnarinnar að kanna hvort flytja á heilsugæsluna, smærri spítala og þjónustuna við aldraða til sveitarfélaganna.

Hér erum við að tala um dæmigerða nærþjónustu. Við erum að tala um að gera mikilvæga þjónustu við íbúana gegnsæja og við erum að tala um að flytja ábyrgðina og eftirlitið með þjónustunni nær þeim sem nota hana. Við erum líka að tala um að fela sveitarstjórnunum að reka þjónustuna á þann hátt sem þær telja heppilegasta.

Þetta er grunnhugsunin í kerfisbreytingunni sem við erum að tala um og ég vonast til að sveitarstjórnarmenn séu tilbúnir að kanna þetta með okkur og ganga til verksins með opinn huga.

Breytingin þýddi vitaskuld að endurskilgreina þyrfti marga veigamestu þætti heilbrigðisþjónustunnar, sem ég tel nauðsynlegt að hugsa upp á nýtt.

Ég nefni hlutverk, skyldur og verksvið Landspítalans og Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri sem dæmi. Eðlilegt er að slík stefnumótun fari fram samfara hugsanlegri uppstokkun í heilbrigðisþjónustunni sem hér er hreift. Endurskilgreining er raunar nauðsynlegt nú þegar sér fyrir endann á þeirri sameiningu sérgreina sem orðin er undir hatti Landspítalans.

Virðulegur forseti – góðir tilheyrendur.
Landspítali – háskólasjúkrahús geldur þess stundum að vera endastöðin í heilbrigðisþjónustunni. Spítalinn, sem tekur við því sem aðrir gera ekki, spítalinn sem ávalt tekur við því sem vísað er á hann, spítalinn sem við gerum kröfur til að sinni bæði kennslu og rannsóknum.

Það liggur í kröfunum sem við gerum til spítalans, og það liggur í stöðu og skilgreiningu hans í heilbrigðisþjónustunni, að það er nánast útilokað að áætla í upphafi árs útgjöldin, sem falla til á spítalanum. Þess vegna verður hann oft fyrir ómálefnalegri gagnrýni.

Ég segi ómálefnalegri vegna þess að ég veit hvað starfsfólk og stjórnendur spítalans standa sig oft vel. Og ég veit um þann góða árangur, sem menn hafa verið að ná víða á spítalanum.

Nú getum við til dæmis borið okkur saman við erlenda spítala með marktækum aðferðum. Í samanburði við spítala, eins og Sahlgrenska, Örebro, eða Umeå spítalana í Svíþjóð stendur Landspítalinn sig afar vel, eins og lesa má um í gögnum hans.

Menn verða líka að meta þann góða faglega árangur sem við erum að ná í heilbrigðisþjónustunni almennt og á Landspítalanum sérstaklega. Biðlistar hafa þar styst, biðlistar eftir bæklunaraðgerðum eru styttri en þeir voru og skurðaðgerðum hefur fjölgað.

Með því að halda á lofti faglegum ávinningi af sameiningu sérgreina er ég ekki að drepa umræðum um fjárhagsvanda á dreif, fjarri því – við verðum alltaf að hugsa um hvernig við verjum því fé sem við höfum til ráðstöfunar og þess vegna verðum við að spyrja okkur að minnsta kosti tveggja spurninga þegar við ræðum fjárhagsvandann:

Í fyrsta lagi: Voru það mistök af hálfu ríkisstjórnarflokkanna að hætta að miðstýra kjarasamningum við opinbera starfsmenn á sínum tíma? og í öðru lagi: Er mögulegt og þá hvernig er mögulegt að auka samkeppni og lækka lyfjaverð til spítalans?

Þetta eru þeir tveir þættir sem erfiðlegast gengur að ná stjórn á í heilbrigðisþjónustunni.


Virðulegur forseti.

Áherslur ríkisstjórnarinnar í heilbrigðis-og tryggingamálum sjást best á því að framlögin til málaflokksins aukast um rúmlega níu prósent í heild.

Og hvað erum við að tala um?

Við erum hér að tala um einn milljarð, sem rennur til öryrkja, við erum að tala um einn milljarð til viðbótar í öldrunarþjónustunni, við erum að auka framlögin til stóru spítalanna um tæpar 900 milljónir króna, 440 milljóna króna aukning fer í heilsugæsluna og heilbrigðisstofnanir, og það renna 64 milljónir til nýs hvíldarheimilis fyrir langveik börn. Það er rétt að taka fram að um 230 milljóna króna viðbótarframlag á að renna til geðheilbrigðismálanna sérstaklega á næsta ári.

Hér eru aðeins nokkur dæmi tilfærð, en aukin framlög til velferðarmálanna byggjast á því, að ríkisstjórnin hefur skapað skilyrði fyrir vexti í efnahagslífinu.

Í kosningabaráttunni lögðum við áherslu á vöxt, vinnu og velferð. Við sögðum: Við þurfum að búa til efnahagslegar forsendur fyrir því velferðarkerfi sem við viljum reka. Fjárlagafrumvarpið – framlögin til velferðamálanna – stefnuræða forsætisráðherra staðfestir að okkur er að takast ætlunarverk okkar.

Góðar stundir.

(Talað orð gildir)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum