Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. október 2004 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Akstursgjald ríkisstarfsmanna. Auglýsing nr. 4/2004

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

Fyrstu 10.000 km. .............................. kr. 62,00    pr. km

Frá 10.000 til 20.000 km. ..................  kr. 56,00      "    "

Umfram 20.000 km. ..........................  kr. 49,50      "    "

Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.

Akstursgjald þetta gildir frá og  með 1. nóvember 2004. Jafnframt fellur úr  gildi  auglýsing nr. 1/2004 dagsett 26. maí  2004.

Vakin er athygli á því að auglýsingar ferðakostnaðarnefndar eru birtar  á vefsíðu fjármála­­ráðuneytisins. Þar er auk þess að finna reglur nefndarinnar um greiðslu dagpeninga erlendis og greinargerð um forsendur útreikninga akstursgjalds og dagpeninga. Veffangið er:  http://fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html

 

Reykjavík, 26. október 2004.

 

Ferðakostnaðarnefnd

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum