Hoppa yfir valmynd

Frétt

2. desember 2004 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Samstarfssamningur við Klúbbinn Geysi

Árni Magnússon, félagsmálaráðherra og Anna Sigríður Valdemarsdóttir, framkvæmdastjóri undirrita samninginn.
Samstarfssamningur

Félagsmálaráðherra, Árni Magnússon, undirritaði í morgun samstarfssamning við Klúbbinn Geysi um að félagar í klúbbnum komi til starfa í félagsmálaráðuneyti árið 2005. Um er að ræða að hámarki hálft stöðugildi sem ráðgert er að nýta þannig að tveir félagar í Geysi komi til starfa ráðuneytinu, hvor í sex mánuði í senn, á næsta ári.

Geysir starfar eftir alþjóðlegri hugmyndafræði, Fountain House, sem fyrst kom fram á sjónarsviðið í New York árið 1948 og er fyrir fólk sem á eða hefur átt við geðræn veikindi að stríða. Hugmyndafræði Fountain House og klúbba sem starfræktir eru um allan heim byggir á þeim skilningi að bati vegna geðrænna veikinda verði að fela í sér þátttöku í mikilvægu samfélagi. Í samræmi við það hefur Klúbburinn Geysir frá upphafi verið vettvangur starfsleitar fyrir félaga sína og er sá samningur sem undirritaður hefur verið við félagsmálaráðuneytið liður í því starfi.

Nánari upplýsingar:

Myndir frá undirritun samningsins:

Frá undirritun samstarfssamnings við Klúbbinn Geysi Frá undirritun samstarfssamnings við Klúbbinn Geysi




Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum