Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. desember 2004 Innviðaráðuneytið

Hámarkssekt vegna brota á umferðarlögum nemur nú 300 þúsund krónum

Ný reglugerð nr. 966/2004, um sektir og önnur viðurlög vegna umferðarbrota hefur tekið gildi.

Reglugerðin breytir reglugerð nr. 575/2001, og felst meginbreytingin einna helst í því að hámarkssekt vegna umferðarlagabrota, sem ákvarðast í samræmi við fyrirmæli og leiðbeiningar sem birtast í viðaukum I -III við reglugerðina, hækkar úr 100 þúsund krónum í 300 þúsund krónur.

Reglugerðarbreytingin er liður í því að fylgja eftir umferðaröryggisáætlun samgönguráðuneytisins og auka aðhald að ökumönnum á þjóðvegum. Á þessu ári hefur samgönguráðuneytið og Umferðarstofa unnið að því að bæta viðhorf almennings til umferðar og nú er næsta skref tekið með því að auka aðhald að ökumönnum á þjóðvegum.

Í nýlegri skýrslu sem tekin var saman af Umferðarstofu um afbrot í umferðinni kemur fram að í þremur af hverjum fjórum banaslysum á Íslandi á árunum 1998 til 2002 er aðalorsök talin vera hraðakstur, ölvunarakstur eða það að bílbelti er ekki notað. Allar þessar orsakir banaslysa tengjast brotum á umferðarreglum.

Samgönguráðherra hefur boðað að umferðaröryggisáætlun verði fylgt fast eftir og hefur þegar ráðgert að leggja 400 milljónir til verksins á næsta ári. Höfuðmarkmið samgönguráðuneytisins er að fækka slysum á þjóðvegum landsins þannig að fjöldi alvarlegra slysa í umferð á hverja 100 þúsund íbúa verði sambærilegur við það sem lægst gerist í heiminum.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum