Hoppa yfir valmynd

Frétt

26. apríl 2005 Heilbrigðisráðuneytið

Skýrsla um fjölgun öryrkja – orsakir og afleiðingar

Fréttatilkynning nr. 5/2005

Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, kynnti í dag skýrsluna Fjölgun öryrkja – orsakir og afleiðingar, sem Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands tók saman að beiðni ráðherra. Hefur höfundur rannsakað og kannað ástæður fyrir fjölgun öryrkja frá í haust sem leið.

Meðal niðurstaðna Tryggva Þórs Herbertssonar er að öryrkjum hefur fjölgað umtalsvert á síðustu árum. Sérstaka athygli vekur að mun fleiri ungmenni innan 19 ára aldurs þiggja hér lífeyri af einhverju tagi en annars staðar á Norðurlöndum. Yngstu bótaþegarnir voru þannig um 136% fleiri hér borið saman við fjöldann annars staðar á Norðurlöndum árið 2002.

Íslendingar virðast jafnframt vera líklegri til að þiggja bætur fram að fertugu. Á milli 40 og 49 ára virðist hlutfall öryrkja vera svipað hér og annars staðar á Norðurlöndum. Eftir fimmtugt snýst dæmið hins vegar við og þá verður örorka mun algengari í grannlöndunum en hér. “Þetta er áhyggjuefni því ekki einungis eru íslenskir öryrkjar að yngjast heldur virðist þessi þróun ekki eiga sér hliðstæðu annars staðar á Norðurlöndum.”, segir m.a. í skýrslu Tryggva Þórs Herbertssonar.

Í skýrslunni kemur meðal annars fram að ef “útgjöld vegna örorkulífeyris væru þau sömu í framtíðinni og árið 2004 má ætla að áfallnar skuldbindingar kerfisins nemi um 165 milljörðum kr. miðað við 3,5% ávöxtunarkröfu. Augljóst er að ef örorkulífeyrisþegar eru að yngjast þá mun það leiða til aukins kostnaðar í framtíðinni. Þannig myndi eins árs hækkun á líftíma meðalbóta leiða til um 6,5 milljarða hækkunar á áföllnum skuldbindingum.”

Í skýrslunni er fjallað um útgjöld hins opinbera vegna málaflokksins og bent á að þau hafi “vaxið úr ríflega 3,8 milljörðum kr. árið 1990 í ríflega 12,7 milljarða kr. árið 2003. Stærsta hluta þessarar miklu og vaxandi útgjaldaaukningar má rekja til fjölgunar bótaþega (82%) en um 18% útgjaldaaukningarinnar stafa af hækkun bótagreiðslna að raunvirði. Ef útgjöld almenna lífeyrissjóðakerfisins eru talin með má ætla að heildarbætur til öryrkja hafi numið um 18 milljörðum kr. árið 2003. Að sama skapi nam áætlaður kostnaður samfélagsins vegna tapaðra vinnustunda vegna örorku tæpum 4% af landsframleiðslu árið 2003, sem varlega áætlað jafngildir tæplega 34 milljörðum kr. á föstu verðlagi.”

Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, kynnti skýrsluna á ríkisstjórnarfundi í morgun og var á fundinum ákveðið að nefnd fulltrúa þriggja ráðuneyta, heilbrigðis- og tryggingamála, félagsmála- og fjármálaráðuneytis færu yfir skýrsluna og skiluðu um miðjan júní áliti um hvernig brugðist skyldi við.

pdf-takn Fjölgun öryrkja á Íslandi - Orsakir og afleiðingar (PDF - 688Kb)....

 

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
26. apríl 2005.

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum