Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. maí 2005 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Akstursgjald ríkisstarfsmanna. Auglýsing nr. 1/2005

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

Almennt gjald
Fyrstu 10.000 km......................................
kr.
60,00
pr.
km
  Frá 10.000 til 20.000 km...........................
''
54,00
-
-
Umfram 20.000 km...................................
''
48,00
-
-

Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.

Akstursgjald þetta gildir frá og með 1. júní 2005. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 4/2004 dagsett 26. október 2004.

Vakin er athygli á því að auglýsingar ferðakostnaðarnefndar eru birtar á vefsíðu fjármálaráðuneytisins. Þar er auk þess að finna reglur nefndarinnar um greiðslu dagpeninga erlendis og greinargerð um forsendur útreikninga akstursgjalds og dagpeninga. Veffangið er: fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html

Reykjavík, 25. maí 2005.

Ferðakostnaðarnefnd



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum