Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. maí 2005 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands. Auglýsing nr. 2/2005

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

1. Gisting og fæði í einn sólarhring
kr.
16.500
2. Gisting í einn sólarhring
''
10.800
3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag
''
5.700
4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag
''
2.850

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2005. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 5/2004 dags. 26. október 2004.

Nefndin fer þess á leit við viðkomandi ráðuneyti að þau kynni efni þessarar auglýsingar þeim stofnunum og fyrirtækjum sem undir þau heyra.

Ennfremur er vakin athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html

Reykjavík, 25. maí 2005.

Ferðakostnaðarnefnd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum