Hoppa yfir valmynd

Frétt

25. maí 2005 Heilbrigðisráðuneytið

WHO hvetur til þess að dregið sé úr neyslu áfengis

Alþjóðaheilbrigðisþingið samþykkti ályktun þess efnis að aðildarríkin beindu sjónum sínum sérstaklega að heilsuspillandi áhrifum áfengisneyslu á næstunni. Ályktunin er fram komin að frumkvæði Norðurlandanna. Það kom í hlut Davíðs Á. Gunnarssonar, fráfarandi formanns framkvæmdastjórnar WHO, að leiða málið til lykta og skapa samstöðu milli þjóðanna á þinginu um ályktunina, en hagsmunir aðildarþjóðanna eru afar mismunandi. Í ályktuninni er lögð áhersla á að þjóðir heims þurfi að bregðast við aukinni áfengisneyslu í heiminum, einkum meðal ungmenna og hafa hugfast að ofneysla áfengis er að verða einn af þeim þáttum sem spillir heilsu manna mest. Samþykkt WHO markar nokkur tímamót en áfengismálin hafa ekki verið á dagskrá samtakanna með þeim hætti sem þau voru nú frá árinu 1983. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin metur það svo að um 4% af sjúkdómsbyrði nútímans megi rekja til ofneyslu áfengis. Er hér átt við þátt áfengisneyslu í hjartasjúkdómum, geðsjúkdómum, og sjúkdómum sem raktir eru til umferðarslysa svo fátt eitt sé nefnt. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hvetur aðildarríki sín til að setja sér skýr markmið á þessu sviði til að draga úr skaðlegri notkun áfengis í því skyni að bæta almennt heilsufar þjóða sinna.

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum