Hoppa yfir valmynd

Frétt

26. maí 2005 Innviðaráðuneytið

Rannsóknarstjóri Rannsóknarnefndar flugslysa í þriggja ára leyfi

Þormóður Þormóðsson rannsóknarstjóri RNF hefur fengið leyfi frá störfum hjá RNF í þrjú ár frá 1. ágúst næstkomandi.

Þormóður hefur verið ráðinn til Alþjóða flugmálastofnunarinnar, ICAO, í Kanada. Þar mun hann gegna starfi tækniráðgjafa í flugslysarannsóknum. Starfssvið hans lýtur annars vegar að ráðgjöf innan stofnunarinnar varðandi flugslysarannsóknir og hins vegar að því að veita rannsóknarnefndum aðildarlandanna ráðgjöf. Í starfinu felst einnig að fylgjast með nýjungum og þróun í flugslysarannsóknum, leggja til hvernig þeim er hrundið í framkvæmd af hálfu ICAO og fylgja því eftir hjá rannsóknarnefndunum.

Á næstu dögum verður auglýst eftir staðgengli Þormóðs hjá Rannsóknarnefnd flugslysa.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum