Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. ágúst 2005 Heilbrigðisráðuneytið

Tilboð opnuð í sjúkraflug

Tilboð í sjúkraflug á Íslandi voru opnuð hjá Ríkiskaupum í dag. Boðið var í sjúkraflug á svokölluðu norðursvæði og í flug til Vestmannaeyja. Fjögur fyrirtæki gerðu tilboð í sjúkraflug á norðursvæðinu, Flugfélag Íslands, Mýflug, Landsflug og Sveinbjörn Dúason. Þrír gerðu tilboð í sjúkraflugið til Vestmannaeyja, Flugfélag Íslands, Flugfélag Vestmannaeyja og Landsflug. Farið verður yfir tilboðin og þau metin nánar á næstu vikum og má búast við að niðurstaða matsins liggi fyrir eftir u.þ.b. fjórar vikur.

Sjá nánar á vef Ríkiskaupa

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum