Hoppa yfir valmynd

Frétt

31. ágúst 2005 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Akstursgjald ríkisstarfsmanna. Auglýsing nr. 4/2005.

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

Almennt gjald
Fyrstu 10.000 km......................................
kr.
61,50
pr.
km
Frá 10.000 til 20.000 km...........................
''
55,50
-
-
Umfram 20.000 km...................................
''
49,50
-
-


Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.

Akstursgjald þetta gildir frá og með 1. september 2005. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2005 dagsett 25. maí 2005.

Vakin er athygli á því að auglýsingar ferðakostnaðarnefndar eru birtar á vefsíðu fjármálaráðuneytisins. Þar er auk þess að finna reglur nefndarinnar um greiðslu dagpeninga erlendis og greinargerð um forsendur útreikninga akstursgjalds og dagpeninga. Veffangið er: www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html

Reykjavík, 31. ágúst 2005.

Ferðakostnaðarnefnd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum