Hoppa yfir valmynd

Frétt

31. ágúst 2005 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Hreinn ávinningur - Hvað er að græða á umhverfisstarfi í fyrirtækjum?

Boðað er til ráðstefnu um umhverfisstarf í fyrirtækjum miðvikudaginn 28. september n.k. kl. 8:30 - 13:00 á Grand Hótel í Reykjavík.

Á ráðstefnunni munu fulltrúar fyrirtækja fjalla um umhverfisstjórnun, þýðingu umhverfisstarfs fyrir ímynd, menningu og samkeppnishæfni fyrirtækja og um fjárhagslegan ávinning fyrirtækja af umhverfisstarfi. Þá ávarpa Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra og Ari Edwald framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins ráðstefnuna.

Ráðstefnan er skipulögð af Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins, Alþýðusambandi Íslands og Umhverfisfræðsluráði.

Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfangið [email protected] fyrir 26. september nk.
Í ráðstefnugjaldi sem er kr. 5.000.- er innifalið kaffi og hádegisverður . 

Dagskrá og nánari upplýsingar  (pdf-skjal).

 

Verið velkomin
Umhverfisfræðsluráð



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum