Hoppa yfir valmynd

Frétt

27. september 2005 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 6/2005

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

  1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 14.300
  2. Gisting í einn sólarhring kr. 8.300
  3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 6.000
  4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 3.000

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. október 2005. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2005 dags. 25. maí 2005.

Nefndin fer þess á leit við viðkomandi ráðuneyti að þau kynni efni þessarar auglýsingar þeim stofnunum og fyrirtækjum sem undir þau heyra.

Ennfremur er vakin athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html

Reykjavík, 26. september 2005.

Ferðakostnaðarnefnd



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum