Ráðstefna í tilefni af 10 ára afmæli laga nr. 53/1995 um stuðning við framkvæmdir sveitarfélaga í fráveitumálum
Ráðstefnan verður haldin þann 24. október 2005 kl. 11.45 til 17.00 í Turninum í verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði.
Ráðstefnan er ætluð fulltrúum sveitarfélaganna og er haldin á vegum fráveitunefndar í samstarfi við umhverfisráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga. Boðið verður upp á léttan hádegisverð kl. 11.45 og að honum loknum verður gengið til dagskrár.
Dagskrá:
11.45 Léttur hádegisverður
12.15 Setning Ingimar Sigurðsson, formaður fráveitunefndar
12.20 Ávarp ráðherra Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráðherra
12.30 Ávarp formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
12.45 Staða mála og framtíðarhorfur. Ágúst Þorgeirsson
13.15 Kröfur hér á landi. Sigurbjörg Sæmundsdóttir, umhverfisráðuneyti
13.25 Hvað hefur áunnist?
- Hafnarfjörður – Fráveituframkvæmdir. Kristján Stefánsson, Hafnarfirði
- Rangárþing eystra - Hreinsun inni í landi, Ágúst Ingi Ólafsson, Rangárþing eystra
- Fljótsdalshérað - Reynsla af samningi um einkaframkvæmd. Eiríkur B. Björgvinsson, Fljótsdalshérað
- Stykkishólmur - Flokkun viðtaka og kortlagning á ströndinni. Róbert A. Stefánsson, Náttúrustofa Vesturlands
14.10 Hverjir eru áhættuþættirnir?. Ása St. Atladóttir, Embætti landlæknis
14.25 Næringarefnaástand í sjónum við Ísland. Sólveig Ólafsdóttir, Hafrannsóknastofnunin
14.50 Leiðbeiningar fyrir sveitarfélögin. Helgi Jensson, Umhverfisstofnun
15.05 Tæknilausnir í fráveitumálum. Gunnar Steinn Jónsson, Umhverfisstofnun
15.20 Kaffi og meðlæti
15.40 Staða mála á EES-svæðinu. Ingimar Sigurðsson, formaður fráveitunefndar
16.00 Umræður
16.45 Samantekt og framtíðarsýn. Ágúst Þorgeirsson
17.00 Lokaorð og ráðstefnuslit. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði.
Ráðstefnustjóri: Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður
Skráning er á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga eða í síma 515-4900.