Hoppa yfir valmynd

Frétt

9. nóvember 2005 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfisráðherra staðfestir tvo úrskurði Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum



Umhverfisráðherra hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar frá 19. nóvember 2004 um mat á umhverfisáhrifum 1. áfanga Sundabrautar að viðbættum tveimur skilyrðum. Enn fremur er staðfestur úrskurður Skipulagsstofnunar frá 7. janúar 2005 um mat á umhverfisáhrifum landfyllinga við vestan- og norðanvert Gufunes í Reykjavík.

Í úrskurði sínum féllst Skipulagsstofnun á lagningu 1. áfanga Sundabrautar í Reykjavík frá Sæbraut yfir Kleppsvík að Hallsvegi og Strandvegi að settum tilteknum skilyrðum. Framkvæmdaraðilar eru Vegagerðin og Reykjavíkurborg. Í matsskýrslu um framkvæmdina eru lagðir fram þrír framkvæmdakostir: leið I (hábrú), leið II (botngöng) og leið III (eyjalausn). Í úrskurði Skipulagsstofnunar er fallist á alla framlagða kosti fyrirhugaðrar framkvæmdar að frátöldu því að hafnað var þeirri útfærslu á leið III að leggja Sundabraut á landfyllingum vestur fyrir Gufuneshöfða.

Ráðuneytinu bárust þrjár kærur vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum 1. áfanga Sundabrautar. Kærendur voru Eimskipafélag Íslands, Árni B. Helgason og sameiginleg kæra Jóhanns Páls Símonarsonar, Bjarka Júlíussonar, Jóns V. Gíslasonar og Kolbeins Björgvinssonar. Með síðastnefndu kærunni fylgdi undirskriftarlisti 337 íbúa Grafarvogs. Jón V. Gíslason kærði jafnframt úrskurð Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum landfyllinga við vestan- og norðanvert Gufunes í Reykjavík.

Niðurstaða ráðuneytisins er að umhverfisáhrifum 1. áfanga Sundabrautar sé nægjanlega lýst í matsskýrslu, hinum kærða úrskurði og öðrum gögnum málsins og að þau áhrif séu ekki umtalsverð í skilningi laga um mat á umhverfisáhrifum. Staðfestur er því hinn kærði úrskurður Skipulagsstofnunar frá 19. nóvember 2004 að viðbættum eftirfarandi tveimur skilyrðum:

1) Framkvæmdaraðilar hafi samráð við fulltrúa íbúa Hamrahverfis um hönnun og útfærslu hljóðvarna og leitast verði við að haga hljóðvörnum með þeim hætti að óæskileg umhverfisáhrif verði sem minnst.

2) Framkvæmdaraðilar hafi samráð við hafnaryfirvöld og hagsmunaaðila í Sundahöfn við hönnun og nánari útfærslu þeirra umferðarmannvirkja sem kynnt eru í matsskýrslu og tengja hafnarsvæðið við Sæbraut og Sundabraut.

Þá var það niðurstaða ráðuneytisins að fyrirhugaðar landfyllingar við Gufunes myndu ekki hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Staðfestur er því einnig úrskurður Skipulagsstofnunar frá 7. janúar 2005 um mat á umhverfisáhrifum landfyllinganna.

Umhverfisráðuneytið
Fréttatilkynning nr. 30/2005



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum