Hoppa yfir valmynd

Frétt

30. nóvember 2005 Heilbrigðisráðuneytið

Niðurgreiðslur vegna gleraugnakostnaðar barna fjórfaldaður

Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, ætlar að beita sér fyrir því að opinber stuðningur við börn sem þurfa gleraugu vegna sjóngalla verði fjórfaldaður frá því sem nú er. Þetta koma fram þegar heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra svaraði fyrirspurn um málið frá Jóhönnu Sigurðardóttur, Samfylkingu. Í máli ráðherra kom fram að starfshópur hefði skilað áfangaskýrslu um málið þar sem gengið væri út frá þeirri forsendu að gleraugu séu hjálpartæki og því eðlilegt og sanngjarnt að ríkið tæki þátt í kostnaði við þau eins og önnur hjálpartæki miðað við tiltekin gefin skilyrði. Sagði ráðherra að miðað væri við að jafna kostnað barnafólks vegna gleraugnakaupa þannig að útgjöld vegna gleraugna barna yrðu svipuð, hvort heldur barnið þyrfti flókin eða einföld gleraugu, að auka jöfnuð milli einstaklinga með mismunandi sjónlagsgalla og stuðla að samkeppni milli gleraugnasala. Hann bætti við að tekið væri tillit til þess í tillögum hópsins að forræðisaldur hefði hækkað. Tillögurnar sem ráðherra kynnti í svari sínu voru þessar:

1. Að endurgreiðslualdur verði hækkaður um tvö ár, frá því að vera fyrir börn og unglinga með ákveðna sjónlagsgalla að 16 ára aldri í það að verða fyrir öll börn og unglinga að 18 ára aldri.

2. Að greiddir verði styrkir vegna gleraugna barna þar sem styrkleiki glerja er +/- 0,75 eða meiri eða sjónskekkja +/- 0,50 eða meiri.

3. Að ríkið taki þátt í gleraugnakostnaði einstaklinga 18 ára og eldri með tiltekna augnsjúkdóma. Reiknað er með að þessi hópur sé nú á bilinu 160–170 einstaklingar.

4. Að greidd verði gleraugu barna þriggja ára og yngri allt að tvisvar á ári, árlega fyrir börn á aldrinum 4–8 ára, annað hvert ár fyrir börn og unglinga á aldrinum 9–17 og þriðja hvert ár fyrir 18 ára og eldri

5. Að greiðsluþátttaka ríkisins verði áfram föst upphæð sem miðist við styrkleika og gerð glerjanna en þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemur verði þeirra. Ætla má að föst krónutala stuðli að samkeppni milli gleraugnaverslana sem hlutfallsgreiðslur gera ekki.

6. Að hlutfall endurgreiðslu eða styrks verði hækkað frá því sem nú er en síðustu tvö árin hafa endurgreiðslur Sjónstöðvarinnar verið að meðaltali 42% af heildarverði glerjanna.

Fram kom í máli ráðherra að í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2006 væri gerð tillaga um að hækka fjárveitingar til Sjónstöðvarinnar um 38 milljónum króna til að standa undir breytingatillögunum sem hann legði til, þ.e. að fjórfalda þátttöku ríkisins í gleraugnakostnaði barna og unglinga. Með viðbótarfjárveitingunni væri reiknað með að samtals 50 milljónum króna sé varið árlega til að greiða niður gleraugnakostnað einstaklinga, þó aðallega fyrir börn og unglinga. Á árinu 2004 voru endurgreiðslur vegna gleraugnakostnaðar rúmlega 12 milljónir króna. Sagði ráðherra að í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu væri nú unnið að útfærslu tillagnanna og yrði fjárlagafrumvarpið samþykkt væri reiknað með að 1. janúar nk. tæki gildi reglugerð um þátttöku ríkisins í kostnaði við gleraugu einstaklinga sem tækju mið af þeim hugmyndum sem hann hefði greint frá.

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum