Hoppa yfir valmynd

Frétt

19. desember 2005 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Auglýsing um styrki til rannsókna á stofnum villtra fugla og villtra spendýra.

Samkvæmt 3. mgr. 11. gr. laga nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, eins og henni var breytt með 39. gr. laga nr. 164/2002, úthlutar umhverfisráðherran fé til rannsókna úr Veiðikortasjóði að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar.

Hér með óskar ráðuneytið eftir umsóknum um styrki til rannsókna á stofnum villtra dýra sem undir áðurnefnd lög falla og skulu þær berast ráðuneytinu fyrir 15. febrúar 2006. Ráðuneytið mun að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar úthluta styrkjum úr sjóðnum eigi síðar en 1. apríl 2006.

Umhverfisráðuneytið

19. desember 2005



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum