Hoppa yfir valmynd

Frétt

15. mars 2006 Heilbrigðisráðuneytið

Þjónusta við geðfatlaða

Ráðherrar og formaður starfshópsins kynna blaðamönnum skýrsluna.

Áfangaskýrsla um aukna og bætta þjónustu við geðfatlaða liggur fyrir og var hún kynnt blaða- og fréttamönnum í dag. Jón Kristjánsson, félagsmálaráðherra, og Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, kynntu skýrsluna í dag ásamt formanni starfshópsins sem tók hana saman, Dagnýju Jónsdóttur, alþingismanni. Meðal þess sem ráðherrarnir og formaður starfshópsins lögðu áherslu á við kynningu skýrslunnar var stefna félagsmálaráðuneytisins í málefnum þeirra sem búa við fötlun og Helsinki-yfirlýsinguna sem undirrituð var í janúar 2005. Þar er lögð áhersla á þjónustu utan stofnana og virkari þátttöku geðfatlaðs fólks í samfélaginu með aukin lífsgæði að markmiði.


 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum