Hoppa yfir valmynd

Frétt

7. apríl 2006 Heilbrigðisráðuneytið

Samstarfssamningur til að stuðla að bættri heilsu barna

Fulltrúar Lýðheilsustöðvar og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins undirrituðu í dag samstarfssamning til ársins 2010 í þágu barna. Með samstarfssamningnum er ætlunin að efla samskipti stofnana tveggja en þess utan er markmið með samstarfinu að vinna að rannsóknar- og þróunarverkefnum til stuðnings heilsu barna á Íslandi. Miðstöð heilsuverndar barna ber ábyrgð á samningnum fyrir hönd Heilsugæslunnar. Þegar eru hafin nokkur samstarfsverkefni þó ekki hafi verið undirritaður formlegur samningur þar um fyrr en nú. Má þar nefna gerð fræðsluefnis fyrir foreldra um næringu ungbarna, fræðsluefnis fyrir starfsfólk heilsugæslu og um tannvernd ungbarna. Ennfremur er samstarf um gerð fræðslu- og forvarnarefnis fyrir grunnskólabörn og foreldra þeirra, sem skólahjúkrunarfræðingar munu nýta í starfi sínu, og um útgáfu á rannsóknaverkefnum læknanema um lýðheilsu barna á Íslandi. Samningurinn var undirritaður af Önnu Elísabetu Ólafsdóttur, forstjóra Lýðheilsustöðvar, Guðmundi Einarssyni, forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, og Geir Gunnlaugssyni, forstöðumanni Miðstöðvar heilsuverndar barna.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum