Hoppa yfir valmynd

Frétt

27. apríl 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Akstursgjald ríkisstarfsmanna - auglýsing nr. 1/2006

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

Almennt gjald

  1. Fyrstu 10.000 km - kr. 64,50 pr. km
  2. Frá 10.000 til 20.000 km - kr. 58,00 pr. km
  3. Umfram 20.000 km - kr. 51,50 pr. km

Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.

Akstursgjald þetta gildir frá og  með 1. maí 2006. Jafnframt fellur úr  gildi  auglýsing nr. 5/2005 dagsett 26. september 2005.

Vakin er athygli á því að auglýsingar ferðakostnaðarnefndar eru birtar  á vefsíðu fjármálaráðuneytisins. Þar er auk þess að finna reglur nefndarinnar um greiðslu dagpeninga erlendis  og greinargerð um forsendur útreikninga akstursgjalds og dagpeninga.

Veffangið er: www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html/ferdakostn.html

Reykjavík, 27. apríl 2006.

Ferðakostnaðarnefnd



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum