Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. maí 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 3/2006

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

  1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 17.500
  2. Gisting í einn sólarhring kr. 11.500
  3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 6.000
  4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 3.000

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2006. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 6/2005 dags. 26. september  2005.

Nefndin fer þess á leit við viðkomandi ráðuneyti að þau kynni efni þessarar auglýsingar þeim stofnunum og fyrirtækjum sem undir þau heyra.

Ennfremur er vakin athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi:

www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html

Reykjavík, 23. maí 2006

Ferðakostnaðarnefnd



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum