Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. maí 2006 Heilbrigðisráðuneytið

Byggt við Heilbrigðisstofnunina Siglufirði

Framkvæmdir eru að hefjast við viðbyggingu Heilbrigðisstofnunarinnar Siglufirði. Verið er að bjóða út jarðvinnuframkvæmdir. Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, tilkynntu um þetta þegar hún heimsótti heilbrigðisstofnunina á dögunum. Hönnun á viðbyggingu fyrir heilsugæslustöð stendur yfir. Áætlað er að fullnaðarhönnun og gerð útboðsgagna verði lokið í lok september.

Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lagði í bréfi til framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Siglufjarðar áherslu á fernt, þegar hún tók ákvörðun um viðbygginguna fyrir heilsugæslustöðina og jarðvegsskiptin, sem nú verða boðin út, þ.e.:

- Nú standa yfir framkvæmdir við fyrri áfanga endurbóta á Sjúkrahúsinu á Siglufirði og eru verklok fyrirhuguð um miðjan júlí á þessu ári.

-  Hönnun á viðbyggingu fyrir heilsugæslustöð stendur yfir. Til að flýta byggingaframkvæmdum við húsið verða jarðvegsskipti í grunni boðin út nú í maí.

-   Áætlað er að fullnaðarhönnun og gerð útboðsgagna vegna viðbyggingarinnar verði lokið í lok september nk. Verkið verður boðið út strax í framhaldi af því. Eftir útboð og gerð verksamnings hefjast framkvæmdir. Verktími þessa verks verður til mars / apríl 2008 og verður verkið þá fullbúið og með frágenginni lóð.

-    Þegar hönnun viðbyggingar verður lokið hefst hönnun á 2. áfanga endurbóta á núverandi húsi. Samkvæmt fyrirliggjandi drögum að framkvæmdaáætlun fyrir árin 2006 til 2012 er gert ráð fyrir að þetta verk verði boðið út snemma árs 2008 og því lokið á sama ári.

 

Sjá nánar bréf ráðherra til framkvæmdastjóra: Siglufjörður - framkvæmdir  (pdf skjal 80 Kb)

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum