Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. ágúst 2006 Innviðaráðuneytið

UT-dagurinn árið 2007

UT-dagurinn árið 2007 verður haldinn fimmtudaginn 8. mars. Eins og kunnugt er var fyrsti UT-dagurinn haldinn 24. janúar sl. Mikill áhugi reyndist vera fyrir þessum viðburði.  Var m.a. haldin ráðstefna undir yfirskriftinni Tæknin og tækifærin og fór þátttaka í henni fram úr björtustu vonum því hana sátu um 300 manns.  Ákvörðun um að halda UT-dag aftur að ári er því byggð á þeirri jákvæðu reynslu sem fékkst af fyrsta UT-deginum. Frekari upplýsingar um UT-daginn munu liggja fyrir í september.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum