Hoppa yfir valmynd

Frétt

28. ágúst 2006 Innviðaráðuneytið

Umræðutorg, netspjall og rafrænar kannanir, hádegisfundur á Grand Hótel Reykjavík 29. ágúst 2006

Nú er lokið tilraunaverkefnum á vegum forsætis- og félagsmálaráðuneytis sem fólust í að kanna hvernig og á hvaða sviðum auka megi samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila. Verkefnin unnin voru af félagsmálaráðuneytinu og sveitarfélaginu Garðabæ.

Í stefnun ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið 2004-2007, Auðlindir í allra þágu,er fjallað um hvernig styrkja megi lýðræðislega stjórnarhætti með þeim möguleikum sem ný tækni býður upp  á og stuðla að auknum gæðum í stjórnsýslunni.  Ofangreindar tilraunir voru afar lærdómsríkar og á  þeirra grunni hefur Verkefnisstjórn um  upplýsingasamfélagið mótað leiðbeiningar um hvernig hægt  er að standa að auknu samráði og samskiptum milli  opinberra aðila og almennings.

Á fundinum verða  niðurstöður tilraunaverkefnanna og ofangreindar  leiðbeiningar kynntar. Að auki verði stutt innlegg frá  samgönguráðuneyti og fleiri aðilum um reynslu þeirra á  þessu sviði.

 

Dagskrá


12:15  Inngangsorð  fundarstjóra


12:40  Tilraunir til samráðs  við íbúa Garðabæjar með rafrænum  hætti.
            Guðfinna B. Kristjánsdóttir,  upplýsingastjóri  Garðabæjar.


12:55  Samráð og samskipti  milli almennings og opinberra aðila.
            Arnar  Pálsson, sérfræðingur í  félagsmálaráðuneyti.


13:10  Áform samgönguráðuneytis  um aukið samráð.
            Karl Alvarsson,  skrifstofustjóri, samgönguráðuneyti.
            Notkun  og reynsla af vefspjalli hjá Tollstjóranum í  Reykjavík.
            Björn Guðmundsson,  vefstjóri hjá Tollstjóranum í  Reykjavík.


13:20  Leiðbeiningar um notkun upplýsingatækni við samráð og samskipti milli 

             opinberra aðila og almennings.

             Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti.

       
13:35 Umræður 


Fundarstjóri  verður Svana Helen Björnsdóttir formaður Ský og  framkvæmdastjóri Stika ehf.

Hægt er að skrá sig  með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected] og í síma  553-2460

Á matseðlinum  verður:
Grillaðar kjúklingabringur með  grænmetisrisotto og spínatsósu. Ístvenna með ferskum  ávöxtum og baileysrjóma í eftirrétt.

Þátttaka fyrir félagsmenn:          4.600 kr.
Þátttaka fyrir  utanfélagsmenn: 5.900 kr.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum