Hoppa yfir valmynd

Frétt

9. október 2006 Dómsmálaráðuneytið

Tillögur starfshóps um öryggismál

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, kynnti í ríkisstjórn föstudaginn 6. október, á fundi með fulltrúum þingflokka 9. október og sama dag á alþingi tillögur starfshóps um öryggismál undir formennsku ríkislögreglustjóra.

Tillögur starfshópsins eru eftirfarandi:

  1. Stofnuð verði öryggis- og greiningarþjónusta hjá embætti ríkislögreglustjóra.
  2. Unnið verði að sérstökum lögum um starfsemi öryggis- og greiningarþjónustunnar.
  3. Starfsemi öryggis- og greiningarþjónustu verði háð eftirliti sérstakrar eftirlitsnefndar sem skipuð verði fimm þingmönnum.
  4. Byggt verði upp upplýsingakerfi fyrir öryggis- og greiningarþjónustuna og aflað verði heimilda til samkeyrslu gagna í vörslu opinberra aðila
  5. Komið verði á formlegu samstarfi við erlendar öryggisþjónustur

Reykjavík 9. október 2006

Skýrsla starfshóps um öryggismál Pdf-skjal

*Fyrir mistök var vinnugagn sett á vefinn en núverandi eintak er hin endanlega skýrsla starfshópsins. Milli eintakanna er ekki veigamikill munur. 19.10.2006

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum