Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. nóvember 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Akstursgjald ríkisstarfsmanna - auglýsing nr. 5/2006

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

Almennt gjald

  1. Fyrstu 10.000 km - kr.68,00 pr. km
  2. Frá 10.000 til 20.000 km - kr. 61,50 pr. km
  3. Umfram 20.000 km - kr. 54,50 pr. km

Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.

Akstursgjald þetta gildir frá og með 1. desember 2006. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2006 dagsett 23. maí 2006.

Vakin er athygli á því að auglýsingar ferðakostnaðarnefndar eru birtar á vefsíðu fjármálaráðuneytisins. Þar er auk þess að finna reglur nefndarinnar um greiðslu dagpeninga erlendis og greinargerð um forsendur útreikninga akstursgjalds og dagpeninga.

Veffangið er www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html.

Reykjavík, 8. nóvember 2006

Ferðakostnaðarnefnd



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum