Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. nóvember 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum erlendis - auglýsing nr. 6/2006

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu ferðakostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum erlendis á vegum ríkisins sem hér segir:

Almennir dagpeningar

Flokkur og staðir SDR Gisting Annað Samtals
Flokkur 1
Mexíkóborg, New York borg, Tókýó, Washington DC
SDR 170 113 283
Flokkur 2
Aþena, Dublin, Hong Kong, Istanbúl, London, Lúxemborg, Moskva, Seúl, Singapúr
SDR 149 100 249
Flokkur 3
Amsterdam, Barsilóna, Brussel, Genf, Kaupmannahöfn, Osló, París, Stokkhólmur
SDR 136 90 226
Flokkur 4
Annars staðar
SDR 117 78 195

Dagpeningar vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa

Flokkur og staðir SDR Gisting Annað Samtals
Flokkur 1
Mexíkóborg, New York borg, Tókýó, Washington DC
SDR 109 72 181
Flokkur 2
Aþena, Dublin, Hong Kong, Istanbúl, London, Lúxemborg, Moskva, Seúl, Singapúr
SDR 96 64 160
Flokkur 3
Amsterdam, Barsilóna, Brussel, Genf, Kaupmannahöfn, Osló, París, Stokkhólmur
SDR 87 58 145
Flokkur 4
Annars staðar
SDR 75 50 125

Ákvörðun þessi gildir frá og með 1. desember 2006. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 3/2005 dagsett 25. maí 2005.

Ennfremur er vakin athygli á umburðarbréfi nefndarinnar, þar sem nánar er kveðið á um tilhögun greiðslu dagpeninga til ríkisstarfsmanna. Umburðarbréfið ásamt auglýsingu ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er að finna á vefsíðu fjármálaráðuneytisins.

Veffangið er eftirfarandi www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html

Reykjavík, 8. nóvember 2006

Ferðakostnaðarnefnd



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum