Hoppa yfir valmynd

Frétt

9. nóvember 2006 Heilbrigðisráðuneytið

Skipulagi mæðraverndar breytt á höfuðborgarsvæðinu

Nýtt fyrirkomulag mæðraverndar á höfðuborgarsvæðinu tekur gildi í lok mánaðarins að því er fram kemur í frétt frá Landspítala og Heilsugæslunni. Í sameiginlegri fréttatilkynningu frá LSH og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er m.a. lögð áhersla á að samkvæmt hinu nýja fyrirkomulagi sé við það miðað að konur sæki sér þjónustu á því þjónustustigi sem við á hverju sinni. Í sameiginlegri fréttatilkynning kemur þetta fram: “Framundan er breyting á skipulagi mæðraverndar á höfuðborgarsvæðinu. Gert er ráð fyrir að heilbrigðar þungaðar konur sæki mæðravernd til nærliggjandi heilsugæslustöðva en konur sem skilgreindar hafa verið með áhættuþætti sækja mæðravernd til LSH þar sem sérhæft eftirlit fæðingarlækna og ljósmæðra fer fram.

Á síðustu árum hefur hlutverk annars vegar heilsugæslunnar og hins vegar LSH við mæðravernd verið að skýrast. Heilbrigðar konur hafa í auknum mæli sótt þjónustu til heilsugæslunnar en konur sem eru með áhættu í meðgöngu hafa leitað til Miðstöðvar mæðraverndar og á LSH. Framvegis er gert ráð fyrir því að heilbrigðar konur njóti þjónustu ljósmóður og læknis á sinni heilsugæslustöð þar sem lögð er áhersla á samfellda þjónustu. Starfið á heilsugæslustöðvunum verður eflt enn frekar og mun njóta öflugs stuðnings Miðstöðvar mæðraverndar.

Hlutverk Miðstöðvar mæðraverndar verður að styðja við mæðravernd á heilsugæslustöðvunum á höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu með áherslu á ráðgjöf, fræðslu og faglegan stuðning við starfsfólk heilsugæslustöðva. Hún verður vettvangur þróunar og rannsókna og tengiliður við LSH.

Ákveðinn hópur kvenna þarf hins vegar á sérhæfðu eftirliti á meðgöngu að halda og verður því sinnt á kvennasviði LSH. Sérstök móttaka verður starfrækt við spítalann fyrir konur í áhættu.

Hlutverk LSH er að tryggja konum sem greindar hafa verið með áhættu í meðgöngu þjónustu þeirra fagstétta sem þörf er á hverju sinni og aðstöðu til frekari meðferðar.

Með þessum breytingum er unnið að því markvisst að konur sæki þjónustu á því þjónustustigi sem við á hverju sinni.

Þessar breytingar taka gildi 24. nóvember og vonast er til að sem minnst röskun verði á þjónustu við þungaðar konur. Starfsfólk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og kvennasviðs LSH mun kappkosta að þessi breyting gangi sem greiðast fyrir sig.”

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum