Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. nóvember 2006 Heilbrigðisráðuneytið

Nýtt frítekjumark taki að fullu gildi um áramótin

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að tillögu Árna Mathiesens, fjármálaráðherra, og Sivjar Friðleifsdóttur, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, að leggja til að gildistöku 300 þúsund króna frítekjumarks vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega verði flýtt um þrjú ár.

Þetta þýðir að ákvæði í frumvarpi um almannatryggingar, sem nú er til umfjöllunar á Alþingi, og gert er ráð fyrir að tækju gildi á árinu 2009 og 2010 taka að fullu gildi um næstu áramót.

Ákvörðun um að flýta gildistökunni og stíga þetta skref að fullu um áramótin, og ekki í tvennu lagi, endurspeglar þann vilja ráðherranna og ríkisstjórnarinnar að koma til móts við eindregnar óskir talsmanna fulltrúa aldraðra og aldraðra sjálfra.

300 þúsund króna frítekjumark er nýmæli sem dregur úr áhrifum tekna við útreikning tekjutryggingar ellilífeyrisþega. Með frítekjumarkinu er ellilífeyrisþegum gert kleift að stunda atvinnu og fá 300.000 krónur á ári í laun, án þess að þessi hluti teknanna skerði tekjutryggingu sem Tryggingastofnun ríkisins greiðir. Frítekjumarkið er þannig enn ein aðgerðin til að draga úr áhrifum tekna á bætur.

Kjarabótin vegna afnáms þessa hluta tekjutenginga gagnast þeim mest í hópi ellilífeyrisþega sem hafa lægri og meðaltekjur.

Með frítekjumarkinu er í fyrsta lagi dregið úr beinum áhrifum tekna á bætur og í öðru lagi eru ellilífeyrisþegum sköpuð almenn betri skilyrði og hvatning til að vera lengur á vinnumarkaði. Mikil atvinnuþátttaka eldri borgara er eitt af sérkennum íslenska vinnumarkaðarins sem hefur mikil jákvæð áhrif á ráðstöfunartekjur eldri borgara borið saman við það sem annars staðar þekkist. Brýnt þykir að varðveita þessi sérkenni.

Með því að draga úr tekjutengingum er líka verið að skapa grundvöll fyrir þann hluta aldraðra sem kýs að vinna lengur en nú tíðkast og er með því komið enn frekar til móts við kröfur aldraðra um möguleika á sveigjanlegum starfslokum.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum