Hoppa yfir valmynd

Frétt

17. nóvember 2006 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Lengd viðvera fatlaðra grunnskólabarna

Ríkissjóður tekur að tillögu félagsmálaráðherra þátt í kostnaði við lengda viðveru fatlaðra grunnskólabarna í 5. til 10. bekk svo að þau fái aðstoð við heimanám og þroskandi dægradvöl eins og önnur börn.

„Þetta er jafnræðis- og réttlætismál“, segir Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra. „Þessi niðurstaða gerir að verkum að fötluð grunnskólabörn fá sömu möguleika og önnur börn á lengdri viðveru í grunnskóla.“

Um alllangt skeið hefur verið unnið að framtíðarlausn varðandi það hver skuli greiða kostnað vegna fatlaðra grunnskólabarna á aldrinum 10 til 16 ára (5. til 10. bekkur) sem fá þjónustu eftir að skólastarfi lýkur eða svokallaða lengri viðveru. Með lengri viðveru er átt við dægradvöl og aðstoð við heimanám sem veitt er grunnskólabörnum eftir að skólastarfi lýkur um klukkan 13 og stendur fram til klukkan 17. Varðandi yngri grunnskólabörnin á aldrinum 6 til 9 ára (1. til 4. bekkur) stendur þeim almennt til boða að fá þessa þjónustu hjá sveitarfélögunum. Ekki skiptir þá máli hvort um fötluð eða ófötluð börn er að ræða.

Sérstakur starfshópur sem fjallað hefur um málið gerði tillögu um lausn þess í áfangaskýrslu í ágúst 2006. Lagt var meðal annars til að gert verði sérstakt samkomulag milli félagsmálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um að ríkissjóður og sveitarfélögin skipti kostnaði vegna lengri viðveru fatlaðra grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Er reiknað með að hlutur ríkissjóðs geti orðið 60 milljónir króna á ári í tvö ár. Jafnhliða verði lög um málefni fatlaðra endurskoðuð í því skyni að kveða skýrt á um hlutverk og ábyrgð ríkis og sveitarfélaga varðandi lengri viðveru fatlaðra grunnskólabarna.

Ríkisstjórnin samþykkti í dag að félagsmálaráðuneytið gangi til viðræðna við Samband íslenskra sveitarfélaga um útfærslu á þessari greiðsluþátttöku ríkisins til bráðabirgða í tvö ár frá 1. janúar 2007 að telja. Enn fremur var samþykkt að félagsmálaráðherra fengi heimild til að undirrita samkomulag við Samband íslenskra sveitarfélaga á þeim grundvelli.

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra ætlar sér skamman tíma til að ganga frá slíku samkomulagi við Samband íslenskra sveitarfélaga.

„Lagaskylda hvílir hvorki á ríkinu né sveitarfélaginu að bjóða þessa þjónustu“, segir Magnús Stefánsson, „en nú liggur fyrir að báðir aðilar standi undir kostnaðinum og leysi úr þessu máli fyrir allt að 370 fötluð börn í grunnskóla“.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum