Hoppa yfir valmynd

Frétt

19. desember 2006 Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðismálaráðherra úthlutar gæðastyrkjum

Heilbrigðismálaráðherra styrkir á árinu ellefu gæðaverkefni í heilbrigðisþjónustunni og afhenti hún styrkin við hátíðlega athöfn í dag. Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, afhenti styrkin í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu að viðstöddum þeim fjölmörgu sem standa að gæðaverkefnunum sem styrkt voru. Fjörutíu og sjö umsóknirn um gæðastyrki bárust ráðuneytinu í ár hvaðanæva af landinu. Sótt var um styrki til gæðastarfs á flestum sviðum heilbrigðisþjónustunnar. Umsóknirnar snéru meðal annars að klínisku gæðastarfi, rafrænni skráningu, öryggi sjúkra og þjónustukönnunum. Styrkt voru verkefni á sviði öldrunarþjónustu, geðheilbrigðisþjónustu, bráðaþjónustu, heilsugæslu, og endurhæfingu.

Sjá nánar lista yfir styrkþega: Styrkþegar - listi (doc opnast í nýjum glugga)

Myndir frá athöfn í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu þegar Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra afhenti styrki til gæðaverkefna.

Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra við úthlutun gæðastyrkja Ráðherra afhendr gæðastyrk
Ráðherra flytur ávarp við úthlutun gæðastyrkja Frá athöfn um úthlutun gæðastyrkja

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum