Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. janúar 2007 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfisráðherra mælir fyrir frumvarpi um Vatnajökulsþjóðgarð

Umhverfisráðherra mælir fyrir frumvarpi um Vatnajökulþjóðgarði
Á Alþingi

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra mælti fyrir frumvarpi til laga um Vatnajökulsþjóðgarð á Alþingi í gær. Vatnajökulsþjóðgarður verður stærsti þjóðgarður í Evrópu og mun hafa mikla sérstöðu í náttúrufarslegu tilliti í heiminum. Ítarleg samantekt Náttúrufræðistofnunar Íslands á verndargildi svæðisins hefur leitt í ljós óvenjulegan fjölbreytileika og náttúrufar sem á óvíða sinn líka, ekki aðeins á Íslandi heldur einnig á heimsvísu. Í máli ráðherra kom fram að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs væri lang stærsta verkefni sem íslensk stjórnvöld hefðu ráðist í í náttúruvernd fyrr og síðar.

Vekur heimsathygli og fjölgar ferðamönnum
Umhverfisráðherra lagði áherslu á það á Alþingi í gær að þessi sérstaða þjóðgarðsins muni í framtíðinni draga að aukinn fjölda ferðamanna, bæði innlendra og erlendra. Alþjóðleg umhverfisverndarsamtök hafa lýst hugmyndum um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs sem afar metnaðarfullum og talið líklegt að stofnun hans muni vekja heimsathygli.

Í mati Rögnvaldar Guðmundssonar ferðamálafræðings um áhrif stofnunar Vatnajökulsþjóðgarðs á íslenska ferðamennsku segir að þjóðgarðurinn muni auka gjaldeyristekjur þjóðarinnar um þrjá til fjóra milljarða króna á ári þegar hann er kominn í fullan rekstur, þar af telur hann að 1,5 milljarður króna muni koma fram árlega sem auknar atvinnu- og þjónustutekjur á nærsvæði þjóðgarðsins. Þannig má gróflega ætla að þjóðgarðurinn hafi skapað nálega 400 til 500 ný störf í landinu þegar á árinu 2012. Umhverfisráðherra sagði að þetta sýndi mjög glögglega, þvert ofan í það sem oft sé haldið fram, að náttúruvernd geti lagt grunn að nýjum tekjum af landinu. Þannig mætti segja að stofnun þjóðgarðsins muni ekki aðeins leggja grunn að vernd einstakrar náttúru heldur jafnframt styrkja verulega atvinnulíf og byggð í nágrenni þjóðgarðsins.

Samið við landeigendur
Í frumvarpinu er lagður rammi fyrir þjóðgarðinn, sérstaklega hvað varðar stjórnfyrirkomulag hans og rekstur. Lagt er til að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs taki mið af alþjóðlegum viðmiðum um þjóðgarða og friðlýst svæði og að verndarstig einstakra svæða þjóðgarðsins miðist við að hefðbundnar nytjar, svo sem að beit og veiðar á fuglum, dýrum og vatnafiskum geti farið fram með viðlíka hætti innan þjóðgarðsins og verið hefur. Samkvæmt frumvarpinu getur land í Vatnajökulsþjóðgarði verið ýmist í eigu ríkisins eða annarra aðila, náist við þá samkomulag. Þegar hafa farið fram frumviðræður milli umhverfisráðuneytisins og viðkomandi landeigenda á þeim svæðum sem áhugi stendur til að verði hluti þjóðgarðsins og er gert ráð fyrir að halda þeim viðræðum áfram jafnskjótt og frumvarp um þjóðgarðinn er orðið að lögum. Ráðgjafarnefnd um þjóðgarðinn, skipuð fulltrúum ráðuneytisins, sveitarfélaga og frjálsra félagasamtaka, gerði tillögu að fyrstu mörkum þjóðgarðsins. Endanleg mörk ráðast hins vegar af samningum við eigendur þess hluta landsins sem er í einkaeign. Fram kom í máli umhverfisráðherra á Alþingi í gær að slíkt samkomulag þurfi að liggja fyrir við stofnun þjóðgarðsins sem vænst er að geti orðið seinni hluta árs 2007 eða á fyrri hluta ársins 2008.

Veigamikið hlutverk heimamanna
Heimamenn hafa lagt á það áherslu að aðkoma þeirra að stjórn og rekstri Vatnajökulsþjóðgarðs verði meiri en í núverandi þjóðgörðum. Í frumvarpinu er leitast við að koma til móts við þessar óskir. Lagt er til að Vatnajökulsþjóðgarður verði ríkisstofnun sem lúti sérstakri sjö manna stjórn skipaðri af umhverfisráðherra. Gert er ráð fyrir að fjórir af sjö stjórnarmönnum, þ.e. formenn svokallaðra svæðisráða þjóðgarðsins komi úr röðum heimamanna. Einn fulltrúi umhverfisverndarsamtaka sitji í stjórn og formaður og varaformaður skipaðir af umhverfisráðherra án tilnefningar. Lagt er til að þjóðgarðinum verði skipt í fjögur rekstrarsvæði undir stjórn þjóðgarðsvarða sem ábyrgð beri á daglegum rekstri svæðanna. Á hverju svæði verði ennfremur skipað sérstakt svæðisráð skipað fulltrúum sveitarfélaga, ferðamálasamtaka og umhverfissamtaka.

Áætlaður kostnaður við uppbyggingu þjónustunets þjóðgarðsins er um 1.150 milljónir króna og stefnt er að því að henni ljúki á fimm árum eftir stofnun þjóðgarðsins. Þannig gæti þjónustunetið verið fullgert á árinu 2012 gangi áætlanir um stofnun þjóðgarðsins eftir.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum