Hoppa yfir valmynd

Frétt

2. mars 2007 Dómsmálaráðuneytið

Kosning.is opnar

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið opnar í dag, 2. mars, upplýsingavef vegna alþingiskosninganna 12. maí næstkomandi. Á upplýsingavefnum, sem hefur slóðina www.kosning.is, er að finna fróðleik og hagnýtar upplýsingar um atriði sem lúta að næstu alþingiskosningum.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið opnar í dag, 2. mars, upplýsingavef vegna alþingiskosninganna 12. maí næstkomandi. Á upplýsingavefnum, sem hefur slóðina www.kosning.is, er að finna fróðleik og hagnýtar upplýsingar um atriði sem lúta að næstu alþingiskosningum. Upplýsingarnar nýtast almennum kjósendum, stjórnmálasamtökum og þeim sem vinna að kosningunum, t.d. varðandi kjörskrá, utankjörfundaratkvæðagreiðslu og atkvæðagreiðslu á kjördegi. Fjallað er um lög og reglugerðir, kjósendur, framboð, framkvæmd kosninga og tölulegar upplýsingar. Þegar nær dregur kosningum verða birtar upplýsingar um framboðslista og kjörstaði. Senda má fyrirspurnir til ráðuneytisins um hvaðeina sem lýtur að framkvæmd alþingiskosninganna.

Reykjavik, 2. mars 2007



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum