Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. mars 2007 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Auglýst eftir tilnefningum fyrir Kuðunginn 2006

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, Kuðunginn fyrir árið 2006. Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni.

Tillögur skulu berast umhverfisráðuneytinu eigi síðar en miðvikudaginn 4. apríl n.k. merktar ,,Kuðungurinn", á póstfangið [email protected] eða með pósti í umhverfisráðuneytið, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum