Hoppa yfir valmynd

Frétt

26. mars 2007 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfisráðuneytið auglýsir eftir sérfræðingi til starfa

Umhverfisráðuneytið
Umhverfisráðuneytið

Laus er til umsóknar staða sérfræðings á skrifstofu sjálfbærrar þróunar og alþjóðamála. Meðal verkefna skrifstofunnar eru starf á sviði loftslagsmála og umhverfisverndar í hafinu auk söfnunar og framsetningu tölulegra vísa um umhverfismál.

Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólapróf er skilyrði.
Góð kunnáttu í ensku.
Góð kunnátta í einhverju Norðurlandamálanna.
Þekking og reynsla á sviði umhverfismála er æskileg.

Staðan veitist frá 1. mai nk. Um launakjör fer samkvæmt samningi fjármálaráðuneytisins við Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins.

Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is fyrir 2. apríl n.k. Starfið er númer 6414. Vakin er athygli á 20. gr. laga nr 96/2000, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Upplýsingar veita Ari Eyberg og Kristín Guðmundsdóttir. Netföng þeirra eru: [email protected] og kristí[email protected]



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum