Hoppa yfir valmynd

Frétt

29. mars 2007 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Öndunarvélaþjónusta veitt

Evald Krog, formaður Muskelsvindfonden í Danmörku, og Guðjón Sigurðsson, formaður MND félagsins
Evald Krog, formaður Muskelsvindfonden í Danmörku, og Guðjón Sigurðsson, formaður MND félagsins á Nordica hotel

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að koma á tilraunaverkefni til tveggja ára um svonefnda notendastýrða þjónustu sem mun taka til fjögurra til sex einstaklinga sem þurfa á öndunarvélaþjónustu að halda vegna sjúkdóma eða slysa. Þjónustan gerir þeim kleift að fara ferða sinna og taka virkan þátt í samfélaginu með hjálp aðstoðarmanna í stað þess að vera bundnir öndunarvél á hjúkrunarstofnun.

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, tilkynntu í um ákvörðun ríkisstjórnarinnar á ráðstefnunni mótum framtíð um félagslega þjónustu á Nordica hotel í dag.

„Þetta varðar sjálfræði, lífsgæði og mannlega reisn og er kærkomin viðbót við þá fjölbreyttu þjónustu sem veitt er þeim sem búa við fötlun hér á landi“, sagði Magnús Stefánsson.

„Þetta er stórkostlegur áfangi í því að veita tilteknum hópi einstaklinga tækifæri til að búa áfram heima en ekki á stofnun“, sagði Siv Friðleifsdóttir.

Ráðherrar félagsmála og heilbrigðis- og tryggingamála tilkynna á blaðamannafundi um öndunarvélaþjónustuÁkvörðunin byggist á tillögum nefndar um notendastýrða þjónustu sem starfar á vegum félagsmálaráðuneytisins. Þessi tilhögun tíðkast orðið nokkuð í nágrannalöndum okkar, einkum á Norðurlöndum, og er upprunnin í Danmörku.

Evald Krog, formaður Muskelsvindfonden í Danmörku, sem sjálfur nýtur þjónustu af þessu tagi heima og heiman, hefur ásamt Guðjóni Sigurðssyni, formanni MND-félagsins, verið ötull talsmaður þjónustu af þessu tagi. Þeir tóku báðir þátt í blaðamannafundinum þar sem tilraunaverkefnið var kynnt.

„Þessi ákvörðun markar tímamót“, sagði Evald Krog. „Ég óska bæði stjórnvöldum og íslensku þjóðinni til hamingju.“

„Ég anda léttar í dag“, sagði Guðjón Sigurðsson. „Í dag er hátíð fyrir okkur MND-veika og fleiri. Viðhorfsbreyting er það sem við þurftum hjá öllum, sjúklingum, fagfólki og ekki síst kjark og þor ráðamanna til að fara nýjar leiðir. “

Þjónustan verður einkum veitt á vettvangi félagsmálaráðuneytisins en heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið annast fræðslu og þjálfun starfsfólks og útvegar nauðsynlegan tækjabúnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum