Hoppa yfir valmynd

Frétt

17. apríl 2007 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Bifreiðar stjórnarráðsins og flugferðir starfsmanna þess verða kolefnisjafnaðar

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að allar bifreiðar stjórnarráðsins verði kolefnisjafnaðar. Jafnframt verður öllum ráðuneytum og ríkisstofnunum gert að kolefnisjafna vegna flugferða ríkisstarfsmanna innanlands og erlendis frá og með næstu áramótum. Þessi samþykkt kemur í framhaldi af því að í gær undirritaði forsætisráðherra ásamt stjórnarformanni Orkuveitu Reykjavíkur og forstjóra Kaupþings samkomulag um stuðning við kolefnissjóðinn Kolvið.

Kolviður var stofnaður að frumkvæði Skógræktarfélags Íslands og Landverndar en hlutverk sjóðsins er að gera landsmönnum kleift að jafna kolefnislosun sína vegna samgangna með því að beita skógrækt sem vopni í baráttunni. Á heimasíðu Kolviðar verður á einfaldan hátt hægt að reikna út hvað hver einstakur bíll losar mikið af koldíoxíði (CO2) á ári og hvað þarf mörg tré til að jafna þá losun (umbreyta koldíoxíðinu í trjávöxt og súrefni). Þannig gefst landsmönnum tækifæri til þess að greiða andvirði þeirra trjáa sem þarf til þess að jafna kolefnismengun þeirra. Kostnaður fer eftir stærð bíla og árlegum akstri en þumalputtareglan er sú að árlega þurfi einstaklingar að greiða andvirði einnar áfyllingar á bílinn. Kolviður gerir langtímasamninga við landeigendur og skógræktendur um ræktun kolefnisskóga á áður skóglausu landi. Í fyrstu mun sjóðurinn einbeita sér að bílaflota landsmanna en síðar er ætlunin að flugfarþegum verði boðið að kolefnisjafna flugferðir.

Hugmyndin að baki Kolviðar er í anda þeirrar stefnu sem ríkisstjórn Íslands vill styðja og mun Kolviður, ef vel tekst til, leggja sitt af mörkum til að ná þeim langtímamarkmiðum sem sett hafa verið um að minnka umtalsvert nettólosun gróðurhúsalofttegunda. Í sama tilgangi var nýverið gerð breyting á lögum um vörugjöld í þá veru að afnema að fullu vörugjöld af metanbílum til þess að hvetja til frekari notkunar þeirra.

Ráðuneyti og ríkisstofnanir hafa einnig verið hvött til þess að kaupa vistvænar bifreiðar, s.s. metanbíla, rafmagnsbíla og tvíorkubíla. Sett hefur verið markmið um að fyrir árslok 2012 verði 35% af bílum í eigu ríkisins knúnir vistvænum orkugjöfum.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum