Hoppa yfir valmynd

Frétt

21. maí 2007 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Skrifstofustjóri skipaður yfir skrifstofu fjármála og rekstrar

Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir
Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir

Umhverfisráðherra hefur í dag skipað Hrafnhildi Ástu Þorvaldsdóttur í embætti skrifstofustjóra skrifstofu fjármála og rekstrar í ráðuneytinu.

Hrafnhildur Ásta hefur starfað sem settur skrifstofustjóri sömu skrifstofu frá 1. febrúar 2004. Áður starfaði Hrafnhildur sem deildarstjóri fjármáladeildar í umhverfisráðuneytinu frá árinu 1999 og jafnframt sem deildarstjóri rekstrardeildar frá árinu 2003. Hún starfaði sem fjármálastjóri Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns á árunum frá 1994 til 1999 og hjá Hagsýslu ríkisins frá 1992 til 1994. Hún lauk námi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1983 og mastersnámi frá Háskólanum í Álaborg árið 1992

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum