Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. júní 2007 Heilbrigðisráðuneytið

Tekjur skerða ekki greiðslur almannatrygginga

Frumvarp heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, sem felur í sér að tekjur sjötugra og eldri skerða ekki greiðslur almannatrygginga, tekur gildi 1. júlí. Frumvarp ráðherra var samþykkt sem lög frá Alþingi á síðasta degi sumarþingsins, 33 greiddu frumvarpinu atkvæði sitt, og 18 greiddu ekki atkvæði. Markmiðið með frumvarpinu var að draga úr vægi viðmiðunartekna gagnvart greiðslum lífeyristrygginga. Þetta þýðir að frá 1. júlí þegar lögin taka gildi munu atvinnutekjur ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri ekki skerða lífeyri frá TR, ekki tekjutryggingu, vasapeninga, vistunarframlag og tekjurnar munu ekki hafa áhrif á greiðsluþátttöku á dvalar- og hjúkrunarheimilum. Rétt er að ítreka að atvinnutekjur maka 70 ára eða eldri skerða hvorki eigin bætur, eins og hér er greint frá, né bætur maka sem orðinn er 70 ára. Áætlað er að árlegur kostnaður við frumvarpið verði á bilinu 560–700 milljónir króna.

Frumvarpið og álit meirilhuta heilbrigðisnefndar er sótt á vef Alþingis (opnast í nýjum glugga)

Frumvarp heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 

Álit meirihluta heilbrigðisnefndar  



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum