Hoppa yfir valmynd

Frétt

26. júní 2007 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Ráðist gegn biðlistum hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins

Frá  heimsókn félagsmálaráðherra í Greiningarstöðina
Frá heimsókn félagsmálaráðherra í Greiningar- og ráðgjafarstöðina

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögur Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra um að hefja sérstakar aðgerðir til að vinna á biðlistum hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.

Ráðist verður í átak með það að markmiði að leysa vandann á næstu tveimur árum. Aðgerðir hefjast þegar í stað.

Stofnuð verða þrjú teymi með þátttöku sálfræðings, barnalæknis, félagsráðgjafa og þroskaþjálfa sem hafa aðgang að talmeinafræðingi, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfa og sérfræðingi í einhverfugreiningu auk læknaritara.

Þar sem húsnæði Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins nægir ekki til að hýsa átaksverkefnið er gert ráð fyrir að leigja viðbótarhúsnæði.

Verkefnishópur sem félagsmálaráðherra skipar mun stýra verkefninu.

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisinsÁætlun félagsmálaráðherra um að vinna á biðlistum Greiningarstöðvarinnar er gerð með hliðsjón af aðgerðaáætlun til fjögurra ára til að styrkja stöðu barna og ungmenna.

Tilvísunum til Greiningarstöðvarinnar hefur fjölgað verulega á síðastliðnum tíu árum. Árið 2000 voru tilvísanir tæplega 200 en tæplega 300 árið 2005. Þrátt fyrir að stofnunin hafi verið efld umtalsvert á liðnum árum og starfsemi endurskipulögð í samvinnu við sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir bíða 250 börn og fjölskyldur þeirra eftir þjónustu hennar. Biðtími hefur verið allt að þremur árum.

Áætlaður kostnaður við átakið nemur 147 milljónum króna.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum