Hoppa yfir valmynd

Frétt

26. júní 2007 Innviðaráðuneytið

Þúsundir gengu gegn umferðarslysum

Talið er að fjögur til fimm þúsund manns hafi tekið þátt í göngunni gegn umferðarslysum í Reykjavík í dag og nokkur hundruð á Selfossi og á Akureyri. Frumkvæði að göngunni eiga nokkrir hjúkrunarfræðingar á Landspítala - háskólasjúkrahúsi.

Gangan
Blöðrum var sleppt til að minnast þeirra sem lent hafa í umferðarslysum.

Í Reykjavík safnaðist mannfjöldinn saman við Landspítala við Hringbraut og gekk sem leið lá um Öskjuhlíð að þyrlupallinum við Landspítala í Fossvogi. Telja forráðamenn göngunnar að milli fjögur og fimm þúsund manns hafi tekið þátt, börn og fullorðnir á öllum aldri. Sleppt var rauðum blöðrum til að sýna stuðning þeim sem lent hafa í alvarlegum umferðarslysum og svörtum blöðrum til að minnast þeirra sem látist hafa í umferðarslysum.

Markmiðið með göngunni er að minna á alvarleg umferðarslys og afleiðingar þeirra og hversu ábyrgð ökumanna er mikil þegar meðhöndlun ökutækis er annars vegar. Eru ökumenn hvattir til að hafa í huga ábyrgð sína nú þegar miklar umferðarvikur eru framundan.


Gangan
Þúsundir manna tóku þátt í göngunni í Reykjavík í blíðuveðri.

Gangan Gangan

Leifur Þorsteinsson, líffræðingur og leiðsögumaður

hjá Ferðafélagi Íslands, leiddi göngumenn.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og slökkviliðsmenn

tóku einnig þátt.

Gangan
GanganKristján Möller samgönguráðherra og Róbert Marshall, aðstoðarmaður hans, sem voru meðal göngumanna eru hér með börn Róberts.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum