Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. ágúst 2007 Dómsmálaráðuneytið

Námskeið til undirbúnings prófi til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður

Prófnefnd samkvæmt reglugerð nr. 1095/2007 með síðari breytingum, um próf til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður, sbr. lög nr. 77/1998 um lögmenn og lög nr. 93/2004, hefur ákveðið að halda námskeið síðari hluta árs 2007. Prófraunin skiptist í tvo hluta, auk verklegrar prófraunar.

Prófnefnd samkvæmt reglugerð nr. 1095/2007 með síðari breytingum, um próf til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður, sbr. lög nr. 77/1998 um lögmenn og lög nr. 93/2004, hefur ákveðið að halda námskeið síðari hluta árs 2007. Prófraunin skiptist í tvo hluta, auk verklegrar prófraunar.

Kennslugreinar:
Fyrri hluti: Einkamálaréttarfar, sakamálaréttarfar, fullnustu­réttarfar, samning lögfræðilegrar álitsgerðar og lögfræðileg skjalagerð.
Síðari hluti: Réttindi og skyldur lögmanna, þar á meðal siðareglur lögmanna og þóknun fyrir lögmannsstörf, málflutningur og önnur störf lög­manna, svo sem samningsgerð og meðferð stjórnsýslumála. Í tengslum við nám­skeiðið fer fram kynning á rekstri lögmannsstofa og starfsemi Lögmannafélags Íslands og úrskurðarnefndar lögmanna.
Auk kennslu í fyrri og síðari hluta er verklegur hluti, sem felst í aðstoð við flutning eins máls fyrir héraðsdómi.

Tími:
Stefnt er að því að kennsla í fyrri hluta fari fram dagana 24.-29. september og 8.-12. október 2007. (Frá 09:15-12:00 og frá 13:15 eða 14:15-17:00 eða 18:00). Jafnframt er stefnt að því að próf í fyrri hluta námskeiðsins verði haldin á tímabilinu 19.-31. október 2007. Nánari upplýsingar um fjölda kennslustunda og fyrirkomulag kennslu verða kynntar síðar.
Ráðgert er að kennsla í síðari hluta fari fram dagana 12.-21. nóvember 2007.
Kennt verður í kennslusal Lögmannafélags Íslands, Álftamýri 9, 108 Reykjavík.
Verklega prófraun skal þreyta eftir að fyrri hluta prófi er lokið og eigi síðar en einu ári eftir að lokið er síðari hluta prófi.

Námskeiðsgjald:
Gjald fyrir þátttöku í fyrri hluta prófraunar er 200.000 kr. og greiðist við skrán­ingu. Gjald fyrir síðari hluta verður ákveðið síðar. Prófgjald er innifalið í nám­skeiðsgjaldi.

Skráning:
Skráning fer fram á skrifstofu Lögmannafélags Íslands, Álftamýri 9, 108 Reykja­vík, s. 568 5620, fax 568 7057, eða með tölvupósti á netfangið [email protected]. Til­greina þarf nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer (heimasíma, vinnusíma og gsm-síma), auk netfangs. Jafnframt skal leggja fram afrit prófskírteinis eða vottorð háskóla til staðfestingar því að umsækjandi hafi lokið fullnaðarnámi í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi.

Frestur til að skrá sig á námskeið er til 17. september 2007.

Athygli er vakin á því að næsta námskeið er fyrirhugað í byrjun árs 2008.


Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
24. ágúst 2007



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum