Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. ágúst 2007 Innviðaráðuneytið

Úttekt á framkvæmd stefnunnar um upplýsingasamfélagið árin 2004-2007

Hafin er úttekt sem ætlað er að varpa ljósi á hvernig til hefur tekist með framkvæmd stefnu upplýsingasamfélagsins Auðlindir í allra þágu, á árunum 2004-2007.



Markmið verkefnisins eru að:

  • Meta hvernig tekist hefur að ná þeim markmiðum sem sett voru fram í stefnunni Auðlindir í allra þágu. Lagt verður mat á hvaða verkefni/verkefnaflokkar hafa tekist vel og hverjir ekki.
  • Meta hvernig tekist hefur til við framkvæmd verkefnisins í heild, eftirfylgni, hvatningu, miðlun og kynningarstarf.
  • Meta skipulag framkvæmdar s.s. aðkomu ráðuneyta, stofnana, sveitarfélaga og annarra.
  • Draga lærdóm af formi, framsetningu og framkvæmd stefnunnar sem nýst gæti við ákvarðanatöku varðandi nýja stefnu og framkvæmd hennar.

Fyrirtækið Capacent ehf.  framkvæmir úttektina og er niðurstaðna að vænta á haustmánuðum 2007.

                                                                                        

                                                                                                                 Reykjavík 24. ágúst 2007



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum