Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. september 2007 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Málefni útlendinga á íslenskum vinnumarkaði

Félagsmálaráðherra hefur skipað vinnuhóp fulltrúa stjórnvalda sem hefur það markmið að efla samvinnu þeirra aðila innan stjórnsýslunnar sem koma að málefnum útlendinga á íslenskum vinnumarkaði og vinna að nánari útfærslu á fyrirkomulagi slíkrar samvinnu. Vinnuhópurinn skal skila ráðherra greinargerð um fyrirkomulag samvinnu, samræmingu upplýsinga hjá mismunandi aðilum og hert eftirlit eigi síðar en 1. nóvember nk.

”Ég legg ríka áherslu á að hópurinn vinni hratt og vel og skili mér greinargerð innan tveggja mánaða sem byggist á raunhæfum aðgerðum til úrbóta og það til frambúðar. Þær stofnanir sem koma með einum eða öðrum hætti að málefnum útlendinga verða að vinna mjög vel saman til þess að raunverulegur árangur náist. Annað er óásættanlegt. Vissulega gegna aðilar vinnumarkaðarins veigamiklu hlutverki í þessu efni og þannig viljum við hafa það en stjórnvöld verða að styðja þeirra góða starf með aðkomu stofnana sinna. Menn eru sammála um að gildandi lög séu góður grunnur til þess að byggja á við eftirlit með skráningu, aðbúnaði og kjörum útlendinga hér á landi og ég vil sjá löggjöfinni beitt með faglegum og markvissum hætti. Það verdur ekki annad liðið en að lögum og reglum verði fylgt í hvívetna og að stofnanir og embætti ríkisins sem eiga að sinna eftirliti með framkvæmd þeirra standi vel vaktina ”, sagði Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, þegar gengið var frá skipun hópsins.

Vinnuhóp félagsmálaráðherra um samvinnu aðila innan stjórnsýslunnar sem koma að málefnum útlendinga á íslenskum vinnumarkaði skipa:

  • Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, skrifstofustjóri í félagsmálaráðuneytinu, formaður
  • Skúli Guðmundsson tilnefndur af dóms- og kirkjumálaráðuneyti
  • Ragnheiður Ólöf Böðvarsdóttir tilnefnd af dóms- og kirkjumálaráðuneyti.
  • Sigurgeir Sigmundsson tilnefndur af Ríkislögreglustjóra. Til vara: Rakel Árnadóttir. 
  • Grétar Þór Kristinsson tilnefndur af Ríkisskattstjóra. Til vara: Hrefna Einarsdóttir.
  • Sverrir Óskarsson tilnefndur af Tryggingastofnun ríkisins. Til vara: Margrét Jónsdóttir.
  • Eva Sigrún Óskarsdóttir tilnefnd af Útlendingastofnun
  • Þórunn Sveinsdóttir tilnefnd af Vinnueftirliti ríkisins. Til vara: Björn Þór Rögnvaldsson.
  • Gissur Pétursson tilnefndur af Vinnumálastofnun. Til vara: Unnur Sverrisdóttir

Starfsmaður vinnuhópsins verður Bjarnheiður Gautadóttir, lögfræðingur í félagsmálaráðuneytinu, sem jafnframt er skipuð varamaður formanns.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum