Hoppa yfir valmynd

Frétt

3. september 2007 Heilbrigðisráðuneytið

Ráðuneytisstjóraskipti í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

Ríkisstjórn Íslands hefur í samræmi við stefnuyfirlýsingu sína ákveðið að beita sér fyrir aukinni þátttöku Íslendinga á sviði þróunarverkefna í heilbrigðismálum á alþjóðlegum vettvangi. Ríkisstjórnin hefur farið þess á leit við Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóra í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti, að hann leiði þetta starf fyrir hönd Íslands frá og með 1. september. Davíð hefur fallist á þá beiðni og lætur um leið af starfi ráðuneytisstjóra í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, utanríkisráðherra og Davíð Á. Gunnarsson hafa komist að samkomulagi um að Davíð flytjist úr embætti ráðuneytisstjóra heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis í utanríkisráðuneytið, í embættið „Special Envoy for Global Health“ og sinni umbeðnum störfum á vettvangi alþjóða heilbrigðismála, með sérstaka áherslu á málefni Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar, WHO.

Berglind Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin í stöðu ráðuneytisstjóra heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis frá og með 1. september. Berglind hefur undanfarið gegnt stöðu sviðsstjóra viðskiptasviðs í utanríkisráðuneytinu, en var áður einn fjögurra aðstoðarforstjóra OECD, Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnunarinnar í París. Þar áður gegndi Berglind embætti ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins.

Berglind lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1978 og M.A. prófi í alþjóða samskiptum árið 1985. Hún hóf störf í utanríkisþjónustunni og starfaði sem sendiráðsritari og síðar sendiráðunautur í utanríkisráðuneytinu og sendiráðunum í Bonn og Stokkhólmi þar til hún var skipuð ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðuneytinu árið 1988. Berglind gegndi störfum framkvæmdastjóra Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn árin 1996-1999 og tók þá aftur við starfi ráðuneytisstjóra í félagsmálaráðuneytinu.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum